Jólagestur vefsins í dag er Ástríður Sveinbjörnsdóttir.
Ég var svo lánsöm að alast upp í stórum systkinahópi á Valgeirsstöðum þar sem foreldrar mínir bjuggu ásamt afa og ömmu, Valgeiri og Sólveigu. Eins og nærri má geta var mikið að gera fyrir jólin en mest var tilhlökkunin þegar eplakassinn var kominn í hús. Hann átti sinn sess á vissum stað í húsinu og afi átti það til að sækja eitt og eitt epli og gefa okkur bita. En það kom að sjálfsögðu í hlut kvennanna að undirbúa allt innanhúss, þrífa, baka og sauma fötin á öll börnin. Margt kvöldið í desember sofnaði ég við saumavélarhljóð hjá ömmu og síðan hjá mömmu þegar við vorum flutt í Hagatúnið. Og svo vaknaði maður við þennan líka yndælis ilm frá bakstrinum á morgnana. Það var lítið um sælgæti en brúnu kökurnar (loftkökur) hennar mömmu voru það besta sælgæti sem við fengum. Það var sko ekkert smáræði sem var bakað af þeim fyrir jólin og ég man ekki betur en Júlli í Sólbæ fengi einn kökustauk fullan af þessu lostæti fyrir hver jól frá mömmu.
Þegar við systur stækkuðum tókum við eðlilega þátt í öllum undirbúningi og það vildi svo vel til að það átti betur við sumar að þrífa og skrúbba en aðrar að baka og elda. Ég tók baksturinn yfirleitt að mér og einu sinni var uppskriftin af brúnu kökunum svo stór að ég fór í rúmið kl. 5 um morguninn.
En svo kom að því að ég fór sjálf að búa. Fyrstu jólin okkar Stebba var nú ekki mikið til af verkfærum í baksturinn, svo sem hrærivél eða kökukefli. Lítinn
handþeytara átti ég þó. Ákvað því að búa einungis til sælgætiskökur, vissi sem var að mamma mundi senda okkur þessar hefðbundu jólakökur, svo sem hálfmána, sprúttur og þessar heimsins bestu brúnu kökur. Og enn er það þannig að ég baka fyrst og fremst sælgætiskökur með súkkulaði. Það er að finna í öllum mínum smákökum nema piparkökunum sem eru aftur á móti skreyttar með miklum og litskrúðugum glassúr.
Uppskriftina sem ég gef ykkur hef ég bakað fyrir öll jól síðan 1971. Þær kalla ég marenskökur með döðlum.
2 eggjahvítur
125 gr sykur
Þetta er stífþeytt
250 gr döðlur, smátt skornar
200 gr síríussuðusúkkulaði (ekki súkkulaðispæni)
100 gr saxaðar möndlur
Setja bökunarpappír á plötu og kökurnar settar á með teskeið.
Gæta þess að baka kökurnar ekki of lengi, hafa þær sem sagt ljósar.




Skrifa athugasemd