Jólagestur vefsins í dag er Birna Ingólfsdóttir sem búsett er í Noregi.
Jólaundirbúningurinn hérna í Noregi er á svipuðum nótum og á Íslandi.
Við Íslendingarnir hérna keppumst við að fá sendan jólamat frá Íslandi, en að sjálfsögðu eru engin jól án hangikjöts og flatbrauðs. Malt og appelsín verða mikilvægustu drykkirnir og Nóa konfektið tekur konunglegu norsku konfekti langt fram. Allar íslenskar venjur verða tvöfalt mikilvægari þegar maður býr í útlöndum.
Pakkarnir verða að komast tímalega í póst og líka jólakortin. Hérna þýðir ekkert að vera með allt á síðustu stundu í þeim efnum.
Smákökurnar eru bakaðar að íslenskri fyrirmynd og uppskriftum hefur nú verið dreift til vina í Noregi, því ekkert jafnast á við þær íslensku.
Það tók nú smá stund að finna rétta súkkulaðið í kökurnar, en það tókst að lokum.
Norðmenn hafa svipað jólahald og íslendingar. Þetta er hátíð fjölskyldunnar.
Jólamaturinn þeirra er þó mjög ólíkur okkar, en hann samanstendur af svínakjöti, pinnakjöti( þurrkað og saltað lambarif) einnig kjötbollur og sérstakar pylsur, í desert er jólagrautur.
Með þessu drekka þeir svo ákavíti, en bara eitt staup. Jólagjafir og jólaskreytingar eru á svipuðum nótum eins og heima. Snjórinn er kominn og fer að öllum líkindum ekki fyrr en í mars. Svo það þýðir ekkert að bíða eftir að hann rigni burt úr innkeyrslunni. Það verður að moka honum burt, enda komin 20 cm. Íslensku jólalögin eru líka mikilvæg. Tæknin hefur gert okkur kleyft að hlusta á íslenska útvarpi og sjónvarpið, svo þetta árið getum við kannski hlustað á jólakveðjurnar í RUV.
Jólakveðjurnar og upplestur úr nýjum bókum er eitt af því sem tengist barndóms jólunum. Einnig kanabarnaballið var alveg ómissandi fyrir hver jól.
Þar fékk ég að smakka kók og smartís í fyrsta sinn.Sömu teiknimyndirnar voru sýndar ár eftir ár, en það gerði nú ekkert til. Ég var hálf feimin við hafnarkrakkana sem mér fannst láta illa og vera hávær. Mér líkaði best að sitja í myrkrinu og horfa á mjallhvít og dvergana sjö, helst í fri og ró. Við krakkarnir fengum fulla poka af hnetum sem við vissum ekkert hvað við áttum að gera við, hneturnar voru alveg óætar og glerharðar. Smákökurnar voru aftur á móti miklu betri, svo þegar heim var komið höfðum við borðar meiri sykur og sælgæti á þessum 4 kl. en við vorum vön að borða á heilu ári. Kannski ekki skrítið þó einhverjir yrðu ofvirkir.
svipað jólahald og íslendingar.
Þá sendi ég hér eina uppskrift. Þetta er uppskrift af norska jólagrautnum.
Jólagrauturinn var og er borðaður á juleaften( aðfangadagskvöld).
Í gamla daga var það siður á sveitabýlunum að skál með grautnum væri lagður út fyrir húsið svo fjøsnissen fengi graut um jólin. Það mátti ekki spara grautinn, því ef fjøsnissen sýndist húsfreyjan væri nísk við hann þá átti hann til að gera henni mörg skammastrik næsta árið. Það var sem sagt ekki gott að hafa hann á móti sér.
En hérna kemur uppskriftin af " Riskrem" sem er fínni útgáfa á jólagrautnum.
Fyrir 4 persónur.
1 1/2 dl. hrísgrjón
vatn
salt
2 dl þeyttur rjómi.
1 til 2 matskeiðar sykur
2 til 3 tesk. vanillusykur
Sjóðið hrísgrjónin, þanneigin að þau verði laus í sér. Skolið þau síðan í köldu vatni og látið renna vel af þeim.
Þeytið rjómann og blandið með sykri og vanillusykri.
Blandið hrísgrjónunum og rjómanum saman í skál og setjið á kaldan stað.
Rískrem er borið fram með ávaxtasósu, safti eða sultu.
Kæru Hornfirðingar við fjölskyldan óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Sérstakar kveðjur til fjölskyldna okkar.
Jóla kveðja frá Noregi
Birna, Bjössi, Jón Björn og Heiða Björg




Skrifa athugasemd