Jólasveinninn sískrifandi í glugga Kaupfélagsins
Jólagestur vefsins í dag er Guðný Svavarsdóttir.
Það er ýmislegt sem kemur upp í hugann þegar jólin eru annarsvegar, skrýtið hvað jólaminningar eru ofar í huganum en aðrar minningar. Ég man til dæmis eftir jólaböllum í Hafnarskóla, það var nú ekki langt að fara þangað heiman frá mér. Einnig er mér minnisstæður jólasveinninn sískrifandi í glugga Kaupfélagsins, hvað hann gat skrifað allann guðslangann daginn og virtist alls óþreytandi. Og talandi um Kaupfélagið þá var nú aldeilis góð lyktin sem kom með eplunum og appelsínunum fyrir jólin, alveg gat maður gleymt sér þar. Ennþá minnir þessi lykt mig á jólin og notalegheitin sem fylgja þeim.
Ég ætla að láta tvær kökuuppskriftir fylgja þessu, það var ekki svo gott að gera upp á milli þeirra og báðar eru mjög góðar.
Auðveld heit súkkulaðikaka.
½ bolli sykur
125 gr smjör
1 bolli hveiti
1 tesk lyftiduft
1 egg
salt á hnífsoddi
1 matskeið af kakó
1 tesk vanilludropar
1/2 bolli mjólk
sykur og smjör hrært saman, eggið hrært útí, þurrefnin og mjólkin sett útí. Degið sett í smurt eldfast mót.
Sósan:
1 bolli púðursykur
1 matskeið kakó
2 bollar sjóðandi vatn
1 tesk vanilludropar
Sósunni er hellt yfir degið. Bakað við 175° í 45 mín. Borið fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.
Enskar smákökur.
100 gr strásykur
50 gr púðursykur
1 egg.
Allt þetta þeytt saman.
100 gr hveiti
1 barnask. kanill
1 tesk vanilla
½ tsk salt
½ tsk natron
Hrært saman við það þeytta.
100 gr smjör (brætt) sett á eftir þurrefnunum
1 dl súkkulaðispænir, bætt í síðast.
Sett með tesk. á pappírsklædda plötu. Bakað við 175°í ca 10 mín.
Kökurnar renna mikið út.



Skrifa athugasemd