Jólagestir
Asdis-Marteinsdottir_IMG_46
Asdis-Marteinsdottir_IMG_46
Ásdís Marteinsdóttir.

02.12.2004 Jólagestir

Jólamaturinn var hangikjöt og saltkjöt

Jólagestur vefsins í dag er Ásdís Marteinsdóttir.

Ég er ekki byrjuð á jólaundirbúningnum ennþá en það kemur að því. Nú er enginn fatasaumur eða stórhreingerningar fyrir jólin eins og áður var. Ég baka ekki orðið nema 1-2 kökusortir og einhverjar tertur. Þegar ég var að alast upp í Ási í Nesjum var margt sem varð að gera fyrir jólin, þá var allstaðar þvegið og skrúbbað hátt og lágt, fægt og pússað því allt varð að vera tandurhreint þegar jólin gengju í garð. Við krakkarnir fengum alltaf ný föt sem mamma saumaði og prjónaði. Það var mikið bakað heima í þá daga, margar sortir af kökum og randalínur. Ég man ekki eftir rjómatertum fyrr en ég var orðin 11-12 ára og þær voru skornar í stykki áður en rjóminn var settur á þær, þá þekktust ekki svampterturnar. Jólamaturinn var hangikjöt og saltkjöt en engar steikur fyrr en frystigeymsla kom á Höfn og hægt var að geyma nýtt kjöt. Epli og appelsínur fengum við aðeins um jólin, þá barst eplailmurinn um húsið,nokkuð sem ekki finnst af eplunum núna.

Enginn bíll var á heimilinu á þessum árum og því sjaldan farið út á Höfn og bara ein ferð fyrir jólin, þá var keypt það sem til þurfti.

Þetta var yndislegur tími þó engar væru ljósaskreytingarnar, ekkert rafmagn heima fyrr en 1956, bara lampar og kerti og það var alltaf nóg að gera sér til gamans. Bestu jólagjafirnar sem ég fékk voru bækur og ég las allt sem ég náði í . Um hátíðarnar fór fólkið í sveitinni mikið milli bæja og oft var spilað langt fram eftir nóttu. Jólatréskemmtun var í kjallara kirkjunnar við Laxá og á eftir var dansað þar fram undir morgun.
Nú er öldin önnur og fáir fara í heimsóknir og horfa bara á sjónvarpið hver í sínu horni. Hvort gamli eða nýi tíminn sé betri skal ég ekki segja um því báðir hafa sinn sjarma.

Ég ætla að koma hér með gyðingakökur sem eru mjög góðar en svolítið öðruvísi en þessar hefðbundnu.

Gyðingakökur:
300 gr hveiti
250 gr smjörlíki
150 gr sykur
½ tesk. natron
1 eggjarauða


Allt hnoðað saman. Búnar til lengjur, skornar niður og kökunum dýft í sykur og möndlur. Bakaðar við 225-250°.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica