Jólagestir
Svava Bjarnadóttir
Svava Bjarnadóttir
Svava Bjarnadóttir fyrsti jólagesturinn á Hornafjörður.is

01.12.2004 Jólagestir

Jólagestir og uppskriftir á Hornafjorður.is

Flestir hafa gaman af að heyra um jólahald vina og kunningja og hvernið það var í ,,gamla daga" og höfum við á hornafjörður.is ákveðið að vera með einn jólagest hvern dag til jóla, fá hann til að rifja upp jólaundirbúning hér áður fyrr og einnig að gefa okkur góða og auðvelda uppskrift af jólakökum, en eins og allir vita er aldrei of mikið af þeim.

Fyrsti jólagesturinn er Svava Bjarnadóttir.

Ég er og hef alltaf verið mikið jólabarn og alltaf þurft að gera allt sem íslenskar húsmæður halda að þurfi að gera fyrir hver einustu jól,þ.e.a.s. henda út úr öllum skápum hreingera allt húsið hátt og lágt, jafnvel láta skipa um hitt og þetta,. baka 25 smákökusortir og að minnsta kosti brúna og hvíta randalínu, gera ísinn og allt þar fram eftir götunum. Það var líka yfirleitt þannig að þegar allir voru búnir að borða á aðfangadagskvöl og taka upp pakkana þá lá mamman í roti eftir allt erfiðið á aðventunni.

Tímarnir breytast og í dag lít ég á jólahátíðina þannig, að um leið og aðventan gengur í garð reyni ég að vera búin að gera það sem ég tel mig þurfa að gera. Reyndar sleppi ég skápum og geymslum (það er hvort sem er enginn að kíkja í þá á jólunum) og skreyti bara yfir skítinn því að það er best að þrífa á vorin þegar fer að birta og allt rykið kemur í ljós.Það er nefnilega þannig að það er sjaldan eins mikið að gera í desember og að fylgjast með því sem fram fer í bænum.

Það þarf að skoða í búðir og kveikja á jólatrénu, fara í Pakkhúsið og hlusta á höfunda sem gefa út bækur, fara á tónleika,aðventukvöld í kirkjunni og allskonar uppákomur að maður tali nú ekki um jólahlaðborð og jólaglögg. Þess er best að njóta á aðventunni og geta gert það án þess að hafa áhyggjur af því hvort ég verði búin að þurrka af eða taka til. Njótið aðventunnar það ætla ég að gera. Gleðileg jól.

Fyrir þessi jól finnst mér tilvalið að gefa uppskrift af köku sem hentar vel í jólaboðið og svo er hún líka afbrags eftirréttur. Þetta er svokölluð Snickerskaka og í hana þarf eftirfarandi...3.Snickers, 60.gr smjör, 3.msk,sykur, 4. egg, 3.dl púðursykur, 1.pela rjóma,

2. stk. Botnar. Og í þá fara...

4. Eggjahvítur
3.dl. púðursykur

Þeytt vel saman.Deiginu er skipt í tvo helminga á plötur sem klæddar eru smjörpappír og bakað í 120 mín við 110 gráðu hita. (Ef notaður er blástursofn þá er hitinn minni) Gott er að slökkva síðan á ofninum og leyfa honum að kólna og hafa botnana inni á meðan.

Krem.
4.eggjarauður
3.msk sykur.
Þeytt vel saman í ljósa froðu.
2 stk. Snickers brædd ásamt 60.gr af smjöri og sett útí froðuna.

1. Snickers brytjað útí þeyttan rjóma.

Þegar kakan er sett saman kemur fyrst einn botn þá krem síðan rjómi svo botn og að síðustu er sett krem ofaná. Best er að gera þetta snemma dags svo kakan nái að taka sig fyrir boðið. Verði ykkur að góðu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica