..

Rolls Royce við Jökulsárlón

Það var glæsilegt ökutæki sem lagði leið sína að Jökulsárlóni í dag, þar var á ferðinni Rolls Royce bifreið árgerð 1923. Einar Björn Einarsson sem rekur ferðaþjónustuna við Jökulsárlón tók meðfylgjandi mynd af glæsivagninum. Einar Björn hitti eiganda bílsins Rick Brown að máli og sagðist Rick hafa komið með Norrænu til Seyðisfjarðar og núna væri stefnan sett á að aka um Ísland með dóttur sinni og jafnvel eitthvað inn á hálendið.

Fyrir 1950 rann Jökulsá á Breiðamerkursandi beint undan jökli u.þ.b. 1½ km til sjávar. Síðan hefur jökullinn hörfað og sístækkandi lón myndast. Meðalrennsli árinnar er 250-300 m³/sek. og stórir ísjakar brotna af jökuljaðrinum, sem er á floti í vatni. Lónið er feikidjúpt, rúmlega 250 m. Sjávarfalla gætir í lóninu flæðir því sjór inn í lónið á flóði

Meira


 
Jökulsárlón Jökulsárlón, kvöld í ágúst 2003 Jökulsárlón (Úr myndasafni ©EBE) Mynd 6

background
Þetta vefsvæði byggir á Eplica