Vissir þú að
Vissir þú að | Spurt og svarað
Hve mikið af ís bráðnar á hverju ári þar sem jökulsporðar ná niður á sanda við Hornafjörð?
Nálægt 10 m.
Hvað er líklegt að jökulsporðar upp af Hornafirði geti skriðið hratt fram?
Svar: Það gæti verið nálægt 1 metra á sólarhring. Mesti skriðharðinn er þar sem jökullinn er brattur, jafnframt þykkur og þrengir að honum. Hraðast hnígur ísinn á miðjum jökli við yfirborð vegna þess að við botn og jaðar er mótstaða. Oft eru jöklar þykkastir við hjarnmörk og halli töluverður enda þarf að bera þar fram fyrningar af öllu safnsvæðinu. Á leysingarsvæðinu dregur úr hraða jökulsins vegna þess að flytja þarf fram stöðugt minni ís; þar bráðnar ís og rennur af jöklinum. Botnskrið er mest þar sem vatnsþrýstingur er hár undir jöklinum. Mest er það í framhlaupum.
Er líklegt að jöklar hreyfist hraðar að sumri en vetri?
Já. Botnskrið er háð vatnsstreymi við botn og það er meira að sumri en vetri. Þess eru dæmi að skrið jökla aukist í stórrigningum.
Hvar myndir þú leita að bakpoka sem þú gleymdir að hausti á safnsvæði jökuls?
Nái að fenna yfir hann fer hann langa leið niður eftir straumlínu og kemur fram á leysingarsvæði. Þannig hafa flugvélar sem fórust á hájöklum komið fram við sporðana. Tapir þú pokanum á leysingarsvæðinu getur þú gengið að honum næsta sumar.
Hvar ber helst að varast jökulsprungur? Hve djúpar eru þær?
Sprungur myndast þegar tog rífur ísinn. Þær myndast þvert eftir jökulbungu þegar ísinn fer yfir ójöfnur í botni. Efsta sprungan getur verið varasöm ef gengið er niður jökulinn því að komið er að henni áður en sér fram af bungunni. Yfir hömrum eru ísfossar eða falljöklar. Jökulgap myndast við hamraþili ofan við jökulinn þar sem jökullinn losnar frá bergstálinu.
Þegar jökull skríður með fjallshlíð rifnar hann vegna núningsmótsstöðu svo að sprungur stefna um 45° upp á við frá hlíðinni. Nái sprungur frá báðum hliðum saman á miðjum jökli eru þær skeifulaga. Langsprungur myndast þegar jökull breiðir úr sér á láglendi.
Sprungur eru venjulega ekki dýpri en 20-30 m. Á því dýpi pressast ísinn saman undan eigin fargi. Dýpstar eru þær yfir kröppum ójöfnum og hættulegastar þegar þær leynast undir snjó á safnsvæðinu eða nýföllnum vetrarsnjó.
Hve lengi er vatn að renna frá Grímsvötnum niður á Skeiðarársand í jökulhlaupum?
Í hámarki Grímsvatnahlaupa gæti vatn runnið þessa 50 km leið á 3-5 klst.
Hve gamall er elsti ís í Vatnajökli?
Elsti ísinn kemur fram við jaðrana eftir að hafa grafist á hájöklinum og borist fram nálægt jökulbotninum. Aldursgreining öskulaga við jökulsporða sýnir að enn er ís í Vatnajökli frá því um 1200. Hugsanlega gæti leynst þar ís frá landnámstíð.
Hvenær myndaðist Vatnajökull?
Síðasta jökulskeiði lauk fyrir um 10.000 árum og á næstu þúsund árum hvarf ísinn hratt af mestum hluta landsins. Talið er að fyrir um 2500 árum hafi jöklar aðeins verið á hæstu fjöllum enda meðalárshiti um þúsundir ára verið 2-3 C hærri en nú er. En þá kólnaði og úrkoma jókst. Jöklar tóku að vaxa og skríða niður af hæstu fjöllum og þeir runnu saman og mynduðu þá meginjökla, sem enn eru hér á landi, Vatnajökul, Langjökul, Hofsjökul og Mýrdalsjökul. Stærstir urðu síðan þessir jöklar seint á 19. öld við lok nokkurra alda kuldaskeiðs.
Hve hratt rofnar land undir Vatnajökli?
Land undir Vatnajökli er talið grafast að jafnaði um 3-4 mm á ári og undan hverjum ferkílómetra berast árlega þúsund tonn af seti. Við jökulhlaup og framhlaup er framburður mun hraðari. Hvert Grímsvatnahlaup, sem stendur í nokkra daga, ber 30 til 150 milljónir tonna. Við hlaup Brúarjökuls 1963 til 1964 nam framburður í Jökulsá á Brú 25 milljónum tonna og jafngilti 14 mm landlækkun á ári undir þeim jökli. Hvergi grófst botn þó hraðar en undir austutstraumi Breiðamerkurjökuls þegar hann gekk fram á kuldaskeiðinu frá 1200 til 1900. Þá lækkaði botn að jafnaði um 10-20 cm á ári.
Hvers vegna er jökulís blár?
Blár litur ísjaka í sprungum og íshellum vekur forvitni. Róf hans nær allt frá daufum bláma yfir í skærblátt. Augað sér tæran ís sem bláan vegna þess að á leið ljóssins um ísinn dofnar rauður, gulur og grænn hluti þess en sá blái nær lengst. Sólarljós þarf að fara gegnum nokkurra metra þykkan ís til þess að þessi áhrif komi fram. Þess vegna eru hvelfingar íshella bláar. Bólóttur ís virðist hins vegar hvítur vegna þess að margþætt ljósið sem endurkastast frá veggjum loftbólnanna yfirgnæfir stakan bláa litinn.
Hversu stór er Vatnajökulll
- 8100 km2 að flatarmáli
- stærsta jökulhvel utan heimskautasvæða.
- rúmlega 400 m þykkur að meðaltali
- mesta þykkt um 950 m.
Öfgar Vatnajökuls
- hæsti og lægsti punktur landsins
- heitasti og kaldasti reitur landsins
- blautasti og þurrasti blettur landssins
Öræfajökull (2119) er hæsti tindur landsins, en Breiðamerkurjökull hefur grafið sig niður fyrir sjávarmál um 300 m. Grímsvötn eru virkasta eldstöð landsins og skammt þar frá í NV er jökullinn þykkastur, um 950 m. Mesta úrkomusvæði landsins er sunnan undir jöklinum við Kvísker en mesta þurrkasvæðið er norður af Breiðubungu.
Samanburður við þekktar stærðir:
- hæð Hallgrímskirkju (meðalhæð Vatnajökuls hve margar Hallgrímskirkjur – mesta þykkt hve margar Hallgrímskirkjur
- hæstu byggingar heims


