Ríki Vatnajökuls - Fréttir
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Góð aðsókn á Jöklasýninguna og Upplýsingamiðstöðina
Jöklabreytingar í Austur-Skaftafellssýslu, í nútíð, fortíð og framtíð.
      <description>Skriðjöklar í Austur-Skaftafellsýslu eru á hlýjasta og úrkomumesta svæði landsins, bregðast hratt við breytingum í afkomu og velta í búskap er með því mesta sem gerist á jörðinni. Saga jöklabreytinga á fyrri öldum er þar vel skráð, þekking á landslagi undir jöklunum góð og jökulmenjar frá hámarki Litlu ísaldar vel varðveittar. Doktorsverkefnið er hluti af rannsóknarvinnu á vegum Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands sem miðar að því að herma viðbrögð jökla á Íslandi við breytingum í veðurfari, en aðstæður til rannsókna á þessu sviði eru einstakar í Austur-Skaftafellssýslu.</description>
Undur Íslands - Hvernig varð Ísland til?
      <description>Hvernig varð Ísland til? Af hverju er Suðurströndin flöt og sandborin meðan á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum eru klettóttar strendur með bröttum fjöllum? Af hverju eru svona mörg eldfjöll á Íslandi? Hvað gerist þegar jökull liggur ofan á eldfjalli? Af hverju er svona mikill jarðhiti á Íslandi? Á námskeiðinu verður fjallað um þessar spurningar og ýmsar fleiri sem varpa ljósi á Ísland, myndun, þess og jarðfræði, á skemmtilegan og lifandi hátt. Í leiðinni verður reynt að útskýra sérstöðu Íslands og af hverju það þykir með áhugaverðustu stöðum í heiminum í jarðfræðilegu tilliti. Kennari er Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ. Ekki þarf að skrá sig á námskeiðið, einungis mæta og er aðgangur ókeypist. Allir eru velkomnir.</description>
      <alt>Magnús Tumi</alt>
Erindi Helga var mjög fróðlegt
      <description>Fimmtudaginn 9. mars var Helgi Björnsson, jöklafræðingur með fyrirlestur sem hann nefndi Landslag undir skriðjöklum í Austur-Skaftafellssýslu.  Til stóð að hafa fyrirlesturinn í Jöklasetrinu en vegna tæknilegra örðugleika þurfti að flytja hann í ráðstefnusalinn í Nýheimum. Erindi Helga var mjög fróðlegt en það fjallaði um rannsókn sem hann hefur gert  á landslaginu undir skriðjöklunum.  Kom fram að jöklarnir hafa rutt svo miklum jarðvegi, þannig að þegar þeir hopa, munu koma  fram djúpir dalir, margir hverjir sem verða langt undir sjávarmáli og munu þá verða þar djúp lón. Einnig kom hann inn á  loftslagsbreytingar og hvað áhrif þær hefðu á jöklana.</description>
Alls komu 7735 gestir á jöklasýninguna á síðasta ári
      <description>Góð aðsókn var að Jöklasýningunni á Höfn árið 2006 og einnig að upplýsingamiðstöðinni. Alls komu 7735 gestir á jöklasýninguna sem er 634 fleiri en árið áður og í upplýsingamiðstöðina komu 11220 sem er sviðað og áður. Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Jöklasýningarinnar segir að um 70% þeirra sem þar koma séu erlendir ferðamenn. Mjög góð aðsókn var að sýningunni Handverk og hönnun sem haldin var í janúar (2006) og eins voru sýningar um páskana vel sóttar. Í undirbúningi er að fá nokkra valda menn og konur til að vera með fyrirlestra á Jöklasýningunni, sem yrðu þá 1-2 í mánuði það sem eftir er vetrar. Þann 8. mars n.k. verður Helgi Björnsson vísindamaður með fyrirlestur um niðurstöður af könnun lands undir jöklum í Austur-Skaftafellssýslu.</description>
60 manns mættu á fyrirlestur Rannveigar um ferðina til Equador
      <description>Um 60 manns hlýddu á fyrirlestur og myndasýningu Rannveigar Einarsdóttur sem haldin var s.l. miðvikudagskvöld í Jöklasýningu. Fyrirlesturinn og myndasýningin var um ferð Hásefs, sem er félagsskapur nemenda sem útskrifaðist af Garðyrkjuskóla ríkisins og fóru til Equador síðastliðið haust en fjöldi ferðamanna þangað er takmarkaður og það er a.m.k. eins árs biðlisti. Fyrirlesturinn var mjög fróðlegur og myndefnið, um 450 myndir sem sýndar voru á skjávarpa voru mjög fjölskrúðlegar. Jöklasýningin mun standa fyrir fleiri fyrirlestrum fram á vorið og leitast við að hafa þá sem fjölbreyttasta.</description>
Jöklasýningin opin alla virka daga
      <description>Jöklasýningin á Hafnarbraut 30 er nú opin alla virka daga frá kl.13-16. Sýningin verður ekki opin um helgar í vetur en hægt er að óska eftir opnun utan opnunartíma segir Guðrún Jónsdóttir menningar- og upplýsingafulltrúi Hornafjarðar. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda enda sérstök og glæsileg í alla staði. Á sýningunni er margvísleg fræðsla  um náttúruna hér á svæði jökla og jökulvatna. Jöklasýningin er ekki síður fyrir börnin því þar eru m.a. uppstoppaðir refir, hreindýr o.fl. ásamt íshellinum vinsæla, jökulsprungu og margt fleira skemmtilegt er þar sem höfðar til krakkanna. Guðrún segir að ýmislegt sé á döfinni framundan í safninu t.d. stendur til að minnast  þess að fyrir 60 árum fór sænsk-íslenskur leiðangur upp á Vatnajökul, en frá því verður hér nánar greint síðar. Einnig er fyrirhugað hér málþing um handverk og mun það án efa vera mörgum áhugamál.</description>
Góð aðsókn á Auður Austurlands
      <description>Sýningin Auður Austurlands, sem er sýning á handverki og listiðnaði úr austfirsku hráefni var opnuð í húsnæði Jöklasýningarinnar á Höfn 12. janúar og er opin til 18. jan. Fjöldi muna á sýningunni er 71 samkvæmt sýningaskrá, flestir eru gripirnir unnir úr hreindýrs horni,  hreindýrs skinni, hrosshári og lerki. Eini Hornfirðingurinn sem tók þátt í sýningunni er handverksmaðurinn Ragnar Arason sem er með renndar undirskálar úr lerki, notaðar undir expresso og capucino leirbolla.</description>
      <alt>Auður Austurlands</alt>
Í HLUTANNA EÐLI – stefnumót lista og minja
      <description>Sýningin Í HLUTANNA EÐLI – stefnumót lista er samsýning sex myndlistarmanna sem einnig vinna við minjasöfn og sýningar. Þeir tengja list og minjar saman með því að vinna verk með hliðsjón af  safngrip. Þannig verða til pör sem mynda farandsýningu sem byrjaði á Árbæjarsafni haustið 2004 en er nú á ferð um landið á hin söfnin sem myndlistamennirnir starfa við.  Sýningin er styrkt af Menningarborgarsjóði. Á Jöklasýningunni á Höfn verður sýningin frá laugardeginum 23. júlí til sunnudagsins 7. ágúst. Hún er opin alla daga kl. 10 – 22</description>
ÍS-land, ný jöklasýning á Höfn.
      <description>Ný og endurbætt Jöklasýning, ÍS-land, verður opnuð á Höfn í Hornafirði föstudaginn, 3. júní nk. Af því tilefni verður móttaka í Nýheimum á Höfn kl. 14:00.  Um klukkustund síðar brýtur Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ísinn og opnar sýninguna. Laugardaginn 4. júní verður opið hús í ÍS-landi, nýrri jöklasýningu kl. 13-21. Aðgangur er ókeypis þann dag og allir velkomnir.  Björn G. Björnsson hannaði sýninguna og innleiddi margar nýjungar og róttækar breytingar á skipulagi hennar. Markmiðið er að gera sýningu á heimsmælikvarða sem dregur sérstöðu Suðausturlands fram á lifandi, fróðlegan og skemmtilegan hátt.</description>
      <alt>Jöklasýning</alt>
BOAZOJAHKI og kynning á nýrri jöklasýningu
      <description>Boazojahki er samíska og þýðir ár með hreindýrum, en n.k. laugardag opnar sýning með þessu nafni í húsnæði Jöklasýningarinnar, Hafnarbraut 30 (gamla Vöruhúsinu) Þetta er sýning á ljósmyndum Trym Ivars Bergsmo frá Noregi, sem í þrjú ár fylgdi Sama fjölskyldu og skráði hversdags líf þeirra, sem hreindýrabænda. Frá barnæsku hefur ljósmyndarinn verið bergnuminn af víðerni Finnmerkur, samskiptum við Sama, hreindýrunum og landslaginu. Af framandi tungumálinu, sérstökum söng þeirra joik, dýrunum, tjöldum þeirra lavvo, fatnaði, haustlitunum, háum himni og endalausri víðáttu. Þetta eru heillandi myndir sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.</description>
      <alt>BOAZOJAHKI og kynning á nýrri jöklasýningu</alt>
Nemendur Heppuskóla skoða Jöklasafnið
      <description>Nemendur Heppuskóla fóru í gær, miðvikudag í skoðunar- og fræðsluferð á Jöklasafnið undir styrkri stjórn Þorgeirs Kristjánssonar kennara. Einn bekkur fór í einu og gafst því góður tími til skoðunar og fræðslu. Á Jöklasafninu tók á móti þeim starfsmaður safnsins Guðrún Ingimundardóttir og sýndi nemendunum safnið og fræddi þau um jöklana, náttúru Hornafjarðar og hina ýmsu hluti sem tengjast jöklunum og eru til sýnis á safninu.</description>
Jöklamýsnar vekja mesta athygli
      <description>Góð aðsókn hefur verið að Jöklasýningunni í sumar  og  sýningargestir nokkuð á annað þúsund. Aðgangur var ókeypis á sýninguna um síðustu helgi í tilefni þess að sett hafa verið upp tvö líkön á sýningunni. Annars vegar líkan af landinu öllu með hnappaborði, sem upplýsir staðsetningu hvers jökuls ásamt grunnupplýsingum um þá og hins vegar stórt líkan af Vatnajökli og umhverfi hans. Líkönin eru gerð af Sigurði Halldórssyni í Módelsmíði ehf.</description>
Jöklasýning - opið hús
      <description>Laugardaginn 26. júlí verður opið hús á Jöklasýningunni til að kynna bæjarbúum og öðrum gestum nýungar á sýningunni. Nýungarnar eru fyrst og fremst 2 líkön. Annars vegar líkan af landinu öllu með hnappaborði, sem upplýsir staðsetningu hvers jökuls ásamt grunnupplýsingum um þá og hins vegar stórt líkan af Vatnajökli og umhverfi hans. Áætlað er síðan að vinna áfram með það líkan og gera það gagnvikt þannig að hægt sé að lyfta jökulhettunni upp á áhugaverðum stöðum.</description>