Fréttir
ÍS-land, ný jöklasýning á Höfn.
Opið hús á laugardag kl.13–21, aðgangur ókeypis.
Ný og endurbætt Jöklasýning, ÍS-land, verður opnuð á Höfn í Hornafirði föstudaginn, 3. júní nk. Af því tilefni verður móttaka í Nýheimum á Höfn kl. 14:00. Um klukkustund síðar brýtur Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ísinn og opnar sýninguna. Laugardaginn 4. júní verður opið hús í ÍS-landi, nýrri jöklasýningu kl. 13-21. Aðgangur er ókeypis þann dag og allir velkomnir. Björn G. Björnsson hannaði sýninguna og innleiddi margar nýjungar og róttækar breytingar á skipulagi hennar. Markmiðið er að gera sýningu á heimsmælikvarða sem dregur sérstöðu Suðausturlands fram á lifandi, fróðlegan og skemmtilegan hátt.
Skrautfjöður sýningarinnar er án efa jöklusprunga og íshellir inn af henni. Í sprungunni og hellinum má heyra tilheyrandi vatnshljóð, bresti og finna fyrir köldum blæstri til að fá sem besta samsvörun við náttúruna. Jökulsprungan er unnin af Sviðsmyndum, en íshellirinn af bresku fyrirtæki JANVS, sem sérhæfir sig í sýningagerð um allan heim. Tæknin sem notuð er við gerð íshellisins er sú sama og Pinewood studios notuðu við gerð ís-sviðsmyndar fyrir James Bond.
Þetta er sýning sem engin má láta fram há sér fara. Sýningin er miðsvæðis á Höfn í háreistu húsi. Á þaki þess hefur verið komið fyrir útsýnispalli með óviðjafnanlegu útsýni til allra átta.



