Um sýninguna

Jöklasýning á Höfn

Um sýninguna

Jöklasýning á Höfn var opnuð 3. júní 2005 eftir miklar breytingar. Markmið sýningarinnar er að miðla á fjölbreyttan hátt fróðleik um náttúru landsins
og bjóða ferðamönnum upp á áhugaverða afþreyingu allt árið. Sýningin er opin alla virka daga frá október til apríl. Daglegur opnunartími er frá byrjun maí til loka september.

Í fyrsta rými sýningarinnar er níu mínútna langt myndband um Vatnajökul og eldgos undir jökli þar sem hægt er að kynnast ógnarkrafti jökulsins og eldsins undir honum. Í þessu rými eru einnig fræðsluspjöld um náttúruvernd og ísmoli sem fl uttur er frá Jökulsárlóni eftir þörfum.

Annað rými sýningarinnar fjallar um náttúru landsins og þjóðgarða. Í þessu rými er að finna fróðleik um jarðfræði Íslands, náttúruna kringum Vatnajökul og þjóðgarðinn. Í miðju rýminu eru uppsett dýr sem einkennandi eru fyrir svæðið, s.s. hreindýr, skúmur, kría og selur, í bland við fræðsluspjöld, líkan af iðrum jarðar og Vatnajökli og stutt myndbandsbrot af náttúru svæðisins.

Á efri hæð hússins er komið í rými þar sem hægt er að fræðast um jökla almennt en sérstaklega Vatnajökul. Í þessu rými er mikill fræðitexti sem uppfyllir þörf þeirra sem áhuga hafa á vísindalegum staðreyndum. Þarna er myndbandsbrot sem sýnir gerð tveggja James Bond mynda sem að hluta til voru teknar upp
í nágrenninu.

Fjórða rými sýningarinnar býður fólki upp á að ganga í líkan af íssprungu og íshelli. Mikill metnaður var lagður í að gera þetta sem raunverulegast til að fólk geti upplifað hvernig er að lenda í slíkum aðstæðum úti í náttúrunni. Hægt er að lesa sögu um Sigurð frá Kvískerjum sem lenti í íssprungu og söng
sálma þar til hann bjargaðist.

 

 

 

 




 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica