Hvar eru þau núna?
Sigríður Helga Axelsdóttir
Sigríður Helga Axelsdóttir

07.05.2010 Hvar eru þau núna?

Sigríður Helga Axelsdóttir

 

Sigríður Helga Axelsdóttir er fædd í Vestmannaeyjum en uppalin á Hornafirði. Hún er dóttir Fanneyar Þórhallsdóttur og Axels Jónssonar. Sigríður flutti til Reykjavíkur árið 2001 til að hefja nám við Hússtjórnunarskólann í Reykjavík. Útskrifaðist þar eftir eina önn við skólann og flutti aftur á Höfn þar sem við tók ein önn í FAS.

Sigríður flutti alveg til Reykjavíkur haustið 2002. Þar gekk hún í Fjölbrautarskólann við Ármúla og útskrifaðist sem stúdent af félagsfræðibraut vorið 2005. Um haustið 2005 byrjaði Sigríður í einkaflugmannsnámi sem hún kláraði sumarið 2006. Haustið 2006 flutti hún svo til Naples í Flórída til að klára atvinnuflugmannsnám. Þar bjó hún í 14 mánuði og gekk í Naples aircenter, sem kennir evrópsk flugréttindi, og útskrifaðist með evrópst flugskírteini.

Eftir að heim var komið eftir æðislegt ár í Bandaríkjunum, byrjaði Sigríður að vinna á sambýli fyrir fatlaða í Grafavoginum ásamt því að klára ýmis flugtengd námskeið. Eftir 2 ára vinnu á sambýlinu, fékk Sigríður vinnu hjá Vodafone, þar vinnur hún á virkum dögum og er á sambýlinu aðra hverja helgi.

 ,,Ekki hefur mikið verið um atvinnu við flug fyrir nýústskrifaða flugmenn eftir hrun, en vonandi með rísandi landi fer þetta allt í gang og verður uppgangur í fluginu og maður getur hætt þessu harki" segir Sigríður aðspurð um ástandið í flugheiminum.

Foreldrar Sigríðar ásamt stórfjölskyldunni búa ennþá á Höfn og kemur hún reglulega í heimsókn til þess að slappa aðeins af, enda er ekkert eins endurnærandi og Hornafjarðarloftið og menningin.

Sigríður óskar öllum Hornfirðingum gleðilegs sumars og vonar að sumarið verði frábært.

 Lyklaborðið ætlar hún að senda á gamla bekkjarsystur Önnu Guðný Guðmundsdóttur

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica