Sævar Már Björnsson
Sævar er sonur þeirra Hildar Gústafsdóttur og Björns Eymundssonar frá Hjarðarnesi og er hann hálfbróðir hans Ómars Frans. Sævar ólst upp á Hornafirði og útskrifaðist hann sem stúdent frá Framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu árið 2001. Síðasta vor útskrifaðist Sævar sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og í dag vinnur hann á bókhaldsstofunni Gæða-Endurskoðun ásamt því að stunda meistaranám í reikningshaldi og skattarétti. Hann hefur verið búsettur í Reykjavík síðustu misseri en hefur haft annan fótin á Hornafirði.
Sævar Már Björnsson hefur opnað vefverslun, GottAloe.is þar sem seld eru vítamín og heilsudrykkir svo eitthvað sé nefnt. Sævar hefur alltaf haft áhuga á rekstri fyrirtækja og er það ein af ástæðum þess að hann hóf nám í viðskiptafræði. Það var alltaf í plönunum hjá Sævari að hefja rekstur einn daginn. Ein af ástæðum þess að hann ákvað að opna vefverlsun og hefja rekstur er að öðlast aukin skilning á öllu því sem tengist bókhaldi og að hans sögn er besta leiðin til þess að framkvæma sjálfur. Þrátt fyrir að þessi rekstur sé ekki stór í sniðum á þessi reynsla eftir að reynast honum vel í starfi þar sem hann vinnur við að færa bókhald.
Þegar Sævar kynntist þessum vörum var hann strax mjög hrifinn og þegar hann áttaði sig á því að það var hægt að hefja reksturinn með lítið fjármagn var lítið annað að gera en að drífa í þessu. Að hans mati skiptir meira máli að öðlast reynslu en að reksturinn skili miklum afgangi, svona til að byrja með.
Sævar hefur unnið mikið í þessu undanfarna mánuði segir hann að þetta sé alveg rosalega skemmtilegt og langar hann að koma fram þökkum til þeirra sem veittu honum aðstoð við að setja upp vefverslunina og sérstaklega vill hann koma þökkum til Daníels Imsland sem aðstoðaði hann við hönnun vefjarins.
Sævar sendir lyklaborðið áfram til Söndru Olgeirsdóttir.




Skrifa athugasemd