Hvar eru þau núna?
Anna Sigurðardóttir
Anna Sigurðardóttir
Drífa, barnabarn Gunnars, Anna og Nökkvi í veiðiferð við Hítarvatn s.l. sumar.

01.11.2007 Hvar eru þau núna?

Algjör forréttindi að eiga samastað fyrir austan

Hvað varð um Önnu Sigurðar?

Anna Sigurðardóttir flutti í Kópavoginn haustið 1998 og hefur búið þar síðan. Anna er dóttir hjónanna Aðalheiðar Geirsdóttur og Sigurðar Hjaltasonar fyrrv. sveitarstjóra á Höfn. Hún hefur unnið hjá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands frá því hún flutti suður og tók við framkvæmdastjórastöðu félagsins árið 2001. Þar sýslar hún aðallega með verðbréf, en einnig sinnir EBÍ ýmis konar forvarnarstarfi á sviði brunamála og er m.a. eldvarnaverkefni á leikskólum landsins dæmi um það.

Anna segist fylgjast vel með málum heima á Höfn og saknar alltaf staðarins í aðra röndina. Sérstaklega einstakrar náttúrufegurðar, því ekki komist nú Esjan blessunin í hálfkvisti við jöklana. Ég reyni líka að halda tengslum við Hornfirðinga, hvort sem þeir búa hér í bænum eða fyrir austan, er m.a.enn í afskaplega skemmtilegum matar- og lífsnautnaklúbbi sem í eru m.a. fyrrverandi samstarfs- og vinkonur fyrir austan.

Sambýlismaður Önnu er Gunnar Þór Árnason og eignuðust þau drenginn Nökkva árið 2004. Þá varð nú mikil breyting á okkar högum, segir Anna, því það voru nokkur viðbrigði fyrir okkur, á gamals aldri, að fara að fást við barnauppeldi. En auðvitað var þetta mikil Guðs gjöf og alveg yndislegt. Tími minn nú fer að mestu í að sinna fjölskyldunni og komum við austur eins oft og mögulegt er. Enda eru það algjör forréttindi að eiga samastað fyrir austan og ég verð að segja; hvað er yndislegra en að sóla sig í Lóninu (enda er alltaf dásamlegt veður þar!), veiða ál og silung og grilla hann svo í lok dags??"

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica