Hvar eru þau núna?
Steinar Garðarsson
Steinar Garðarsson
Steinar Garðarsson ásamt dóttur sinni Guðfinnu Birtu úti að hjóla.

08.02.2007 Hvar eru þau núna?

Ofarlega í huga hans er golfvöllurinn

Hvað varð um Steinar Garðarsson?

Steinar Garðarsson fór í Samvinnuskólann haustið 1984 og varð stúdent þaðan vorið 1988. Steinar starfaði sem bensíntittur og í Búnaðarbanka Íslands á sumrin. Haustið 1989 hóf Steinar nám við Háskólann á Bifröst og lauk þaðan prófi í rekstrarfræðum 1991. Haustið 1991 hóf hann störf hjá Gunnari Magnússyni endurskoðanda í Reykjavík, þar starfar hann við framtalsgerð og uppgjör auk margs konar skatta- og fjármálaráðgjafar við einstaklinga og fyrirtæki. Að sögn Steinars þá hafa áhugamálin frá því að hann var á Höfn ekki breyst mikið en fyrir utan samveru með fjölskyldunni er það golfið sem er hans aðal áhugamál og að sjálfsögðu ljósmyndun. Steinar er kvæntur Ólafíu Ingibjörgu Þorvaldsdóttur viðskiptafræðingi og eiga þau tvö börn, Guðfinnu Birtu 8 ára og Stefán Inga 3 ára.

Þegar Steinar er spurður að því hvers hann minnist helst frá Höfn þá svarar hann því til að það hafi verið frábært að alast þarna upp. Ofarlega í huga hans er golfvöllurinn og allir sem hann umgekkst á golfvellinum. Það voru forréttindi sem barn og unglingur að byrja að spila golf í þeirri náttúrufegurð sem Silfurnesvöllurinn er. Steinar segir að upphaf golfsins hjá honum hafi verið tilviljun, hann og Ómar Bragason (Braga Bjarna) hafi verið á rölti og mætt Braga Karlssyni sem var með fjórar Blue Flash golfkylfur og var að koma af vellinum. Bragi sagði að Albert Eymundsson ætti kylfurnar og það mættu allir fá þær lánaðar sem vildu og afhenti okkur kylfurnar. Þessar golfkylfur urðu til þess að yngri kylfingum fjölgaði talsvert á Höfn þar sem þær gengu manna á milli.
Steinar segist minnast þess þegar hann mætti oftar en einu sinni í Landsbankann og óskaði eftir að hitta bankastjórann og tyllti sér við hlið einhvers útgerðarmanns sem beið einnig eftir viðtali þó trúlega í öðrum erindagjörðum, því bankastjórinn (Jón Júl.) var sá eini sem seldi golfkúlur á staðnum og er það lýsandi fyrir það hve Höfn var lítið pláss á þeim tíma. Trúlega fara menn ekki í bankastjóraviðtal í þeim tilgangi í dag að kaupa Range golfkúlur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica