Starfar í dag sem sérfræðingur á sviði stjórnsýslu og menningarmála
Hvað varð um Gísla Sverri Árnason
Gísli Sverrir Árnason og fjölskylda hans fluttu til höfuðborgarinnar sumarið 2005. Fyrsta árið vann Gísli Sverrir sem kynningarstjóri Þjóðminjasafns Íslands en eftir að hann lauk MPA prófi í opinberri stjórnsýslu í haust hefur hann starfað sjálfstætt sem sérfræðingur á sviði stjórnsýslu og menningarmála. Sérsvið hans eru sveitarstjórnarmál, menningar- og safnamál ríkis og sveitarfélaga, kynningar- og útgáfumál, stefnumótun og samstarf ólíkra aðila á ýmsum sviðum. Reynsla Gísla Sverris snýr m.a. að samstarfi sveitarfélaga, menningarsamstarfi og uppbyggingu og stefnumótun í þessum málaflokkum. Á þeim sviðum hefur hann unnið talsvert fyrir ráðuneyti og sveitarfélög á undanförnum árum, bæði sem fulltrúi í nefndum en einnig nú í haust sem ráðgjafi nefndar menntamálaráðherra um varðveislu- og geymslumál menningarstofnana.
Hann tekur að sér stór og smá verkefni við kynningarstörf og almannatengsl, textagerð, verkefnisstjórn og ráðgjöf. Meðal verkefna sem hann vinnur að þessa stundina eru gerð mannaflaspár næstu 10 ár fyrir stóra opinbera stofnun. Einnig útvegun kostunaraðila vegna viðamikilla rannsóknarverkefna annars aðila. Þá eru í burðarliðnum verkefni varðandi samruna stofnana o.fl. Hann hefur að sjálfsögðu áhuga á að vinna að verkefnum sem tengjast Hornafirði og hefur reyndar sjálfur hugmyndir að nokkrum slíkum.
Gísli Sverrir opnaði nýlega heimasíðu (www.gislisverrir.is) þar sem sagt er lítillega frá því sem hann fæst við og hefur verið að gera áður.
Þess má að lokum geta til gamans að Gísli Sverrir er í hópi badmintonspilara frá Hornafirði sem hittast reglulega í Reykjavík. Þeir hafa nú fengið heimboð frá badmintonfólki á Hornafirði og eru því væntanlegir austur á næstunni til þess að takast á við heimamenn.




Skrifa athugasemd