Viðburðir

Viðburðir

Litlu jólin 2010

Matseðill

Litlujólin 2010:  4.des. og 10.des. kl.19.00Humarhöfnin um jól

Lystauki

Heitreyktur áll og Álaborgar ákavíti

Forréttir

Grillaður  Halloumi ostur frá Akurnesi

og

Hráskinka á glóðuðu brauði m/geitaostasósu og basilíku.

Milliréttur

Andalæri m/rósmarín marineruðum aprókósum

♫♫

Aðalréttur

Rifjasteik með brúnuðum kartöflum, steiktu hvítkáli og beikoni.

Eftirréttur

Heitar pönnukökur með bræddum Camembert og Kahlúarjómasósu

Verð Kr. 6.500

 

 

Yndisbiti í Ríki Vatnajökuls!

Slow Food samtökin á Höfn standa fyrir kynningu á Slow Food og kvöldverði á Humarhöfninni lau.12.des. 2009 kl.18.00

Gestakokkur: Grétar Vilbergs

Matseðill:

Íslensk hráskinka

Hreindýrabuff

Ferskir ávextir

Verð Kr. 4.500

Upplýsingar í síma 891 8080

 

 

Litlu Jólin á Humarhöfninni.                                                                 Humarhöfnin um jól

Laugardaginn 5.desember 2009, kl. 19.00

Matseðill:

Íslensk hráskinka þurrkuð og hangin samkvæmt ítölskum hefðum.

Humarhalar í skel m/ostabráð.

Síld m/karrýsalati og rúgbrauði.

Reyktur áll með eggjahræru  og graslauk.

Andalæri „confit“ upp á franska vísu.

Rifjasteik með stökkri puru og sykurbrúnuðum kartöflum.

Vanilluís með heitri döðlusósu.

Ragnheiður Sigjónsdóttir og Elvar Bragi halda uppi jólastemningu með söng og spili.

Verð kr. 6.200

Hittumst og gleðjumst í kaupfélaginu.

Nánari upplýsingar 846 1114

Anna vert.

 

 

 

 Muggar

Mars 2009.

Norðurljósablús á Humarhöfninni:

Föstudag 6.mars, Kl. 18.00 – 21.00

Humarblót og tónleikar.

Feðgarnir Muggur og Mugison munu heiðra okkur með nærveru sinni þetta kvöld en Muggur (Guðmundur Kafteinn) verður gestakokkur okkar en Mugison ætlar taka gítarinn með og blúsa fyrir matargesti sem fá humar eins og þeir geta í sig látið.

Matseðill:

Forréttur........... Koníakslöguð humarsúpa m/hvítu súkkulaðifrauði

Aðalréttur..........Humarhalar í rósapipar- chilisósu m/brauði og fersku salati

Eftirréttur..........Baileys – súkkulaðimús

Verð Kr. 4.900

 

Humarhöfnin stóð fyrir ýmiskonar viðburðum 2008.  

Við héldum við humarblót á Blúshátíð í byrjun mars en þá spilaði dúettinn The Pitchfork Rebellion fyrir matargesti sem fengu að borða sig sadda af humri. Þau spiluðu einnig fyrir gesti okkar á Humarhátíð en hún er haldin hátíðleg fyrstu helgi í júlí ár hvert.

Á humarhátíð var einnig opnuð málverkasýning. Þá voru sýnd verk eftir Hallgrím Ingólfsson, arkítekt frá Akureyri.

Í september buðum við upp á framandi stemmningu með líbönskum matseðli og í nóvember héldum við upp á Mortenskvöld með heilsteiktum öndum og tilheyrandi.  Þá höldum við Litlu jólin í desember með jólamatseðli fyrir einstaklinga og hópa.

 

Happenings 2009.

Blues festival in Humarhöfnin.

Friday march 6th. Time: 18.00 - 21.00 

Lobster feast and blues.

Father and son Muggur and Mugison will honour us with their presence that night.

Captain Muggur will be our visiting Chef but Mugison will bring along his guitar and

perform for our dinner guests who get to eat all the lobster they can.

Menu:

Starter..........................Cognac based lobster soup w/white chocolate

Main Course.................Pink pepper and chili lobster tails w/bread and salad

Desert..........................Baileys - chocolate mousse

Price: Kr. 4.900


 
Réttir Humarhöfnin Humarhöfnin Humarhofnin Humarhöfnin
Humarhöfnin Humarhöfnin Verði ykkur að góðu!
Þetta vefsvæði byggir á Eplica