Um okkur

Um okkur

Húsið.

“Verslunarhús Kaupfélags Austur-Skaftfellinga var alfarið byggt af heimamönnum á árunum 1936-1937. Húsið ásamt innréttingum kostaði 50.800 krónur og var það talsvert meira en ráðgert var í upphafi en samt þurfti kaupfélagið ekki að taka ný lán vegna framkvæmdanna. Húsið þótti glæsileg bygging á sínum tíma og bar vott um sterka fjárhagsstöðu kaupfélagsins á síðari hluta fjórða áratugarins.Grunnflötur hússins var 102 fermetrar. Á neðri hæð var sölubúð en á þeirri efri voru sex skrifstofuherbergi.„

(Saga Hafnar í Hornafirði I, bls.178. Arnþór Gunnarsson).

HumarhöfninUpphafiðHumarhofnin

Húseignina að Hafnarbraut 4 keyptum við í apríl 2007 og ákváðum fljótlega að þar vildum við reka sérhæfðan humarveitingastað en þannig stað fannst okkur vanta hér í höfuðborg humarsins. Nafnið Humarhöfnin fæddist fljótlega og hæfir vel þar sem frábært útsýni yfir höfnina blasir við úr gluggum hússins.  Á neðri hæð var upphaflega rekin verslun á vegum KASK sem var síðar breytt í skrifstofur þegar byggt var nýtt verslunarhúsnæði (1963). 
Við ákváðum að gera okkar besta til að koma neðri hæðinni aftur í upprunalegt horf og rifum því niður veggi og falskt loft og rifum frá þessum yndislega fallega “art deco„ stiga en það höfðu verið slegnir upp veggir sem huldu hann að mestu. 
Neðri hæðin var sem sagt tekin í nefið og gerður einn stór veitingasalur sem rúmar uþb. 60 manns með bar og snyrtingum í framanverðu húsinu þar sem verslunin var áður en í aftari hluta (viðbyggingu frá 1957) var útbúið eldhús og lager. 
Efri hæðin fékk að halda sér fyrstu tvö árin en þar var hægt að fá sérherbergi fyrir minni hópa (8 – 14) í kaupfélagsstjóra skrifstofunni eða fundarherberginu. Vorið 2009 ákváðum við að breyta efri hæð á þann hátt að rífa niður veggi og útbúa nýjan sal sem rúmar um 40 manns í sæti. Þar tökum við á móti hópum og gestum sem vilja vera út af fyrir sig. Við héldum fundarherberginu óbreyttu en þar er hægt að funda og eða borða fyri 15 manns. Við settum frábært steinteppi á gólfi en efnið í það kemur af fjörunni við Horn og er bæði fallegt og gott að ganga á. Á efri hæð er einnig að finna fræðsluefni um sögu KASK og muni sem tilheyrðu félaginu.

 

HumarhöfninVið fengum til liðs við okkur kokk frá Frakklandi, Jaques Dupont, til að þróa með okkur matseðilinn en hann var hér í tvær vikur þegar við opnuðum veitingastaðinn á humarhátíð 2007.  Það var mikið að gera allt sumarið og bæði heimamenn og ferðalangar tóku okkur mjög vel.   

Humarhöfnin lógó

 

Merkið okkar.

Humarmerkið okkar er hannað af Hallgrími Ingólfssyni, arkitekt á Akureyri.

 

 

Eigendur

Eigendur.

Humarhöfnin er fjölskyldufyrirtæki en eigendur hennar eru:

Anna Erla Þorsteinsdóttir, veitingakona og framkvæmdastjóri

Ólafur Vilhjálmsson, skipstjóri

María Gísladóttir, bókmenntafræðingur

 

Fræðin.

Rekstur Humarhafnarinnar er byggður á þeirri hugmyndafræði að matreiða og bera fram mat úr svæðisbundnu hráefni.  Þá er m.a. átt við að varan, í þessu tilfelli maturinn, sé rekjanleg til framleiðenda eins og t.d. að við getum sagt hvaða bátur veiddi humarinn okkar en hann kaupum við milliliðalaust beint frá Sigurði Ólafssyni og Skinney - Þinganes sem gera út og landa hér á Höfn.

Við leggjum áherslu á að maturinn okkar sé sem ferskastur og lítið meðhöndlaður en fyrst og fremst leggjum við áherslu á að hann sé framleiddur í Austur-Skaftafellssýslu. Sjá frekar undir “hráefnið okkar„. Við tókum líka þá ákvörðun að hafa fáa en góða rétti á matseðlinum.


 
Réttir Humarhöfnin Humarhöfnin Humarhofnin Humarhöfnin
Harmonikautonlist Humarhofnin Himnaríki á jörð (@Skaftafell)
Þetta vefsvæði byggir á Eplica