Hráefnið okkar

Hráefnið okkar

 

sidueining humarhofninHumarinn okkar er veiddur af Hornafjarðarbátnum Sigurði Ólafssyni og bátum útgerðarinnar Skinney - Þinganes.  Við kaupum hann beint og tryggjum þannig ferskleika og gæði.

Lambakjöt fáum við frá Fjallalambi á Kópaskeri en vörurnar þeirra uppfylla kröfur okkar.

“Fjallalamb er fremur lítið fyrirtæki miðað við önnur sambærileg í þessum geira atvinnulífsins. Það er yfirlýst stefna félagsins að starfa sjálfstætt og nýta sér þá sérstöðu sem félagið hefur frá náttúrunnar hendi. Vegna þessarra náttúrukosta, verkþekkingar og vegna smæðar sinnar á það möguleika á að sinna séróskum kröfuharðra neytenda, viðskiptavina sem meta gæði og góðan uppruna ofar lágu verði. Þannig hyggst félagið skapa sér sérstöðu á markaðinum.„ (Tekið af heimasíðu Fjallalambs í feb.2008).

Endurnar/andalærin koma frá andabúi Reynis og Katrínar á Hlíðabergi á Mýrum en þær höfum við á jólamatseðlinum með tilheyrandi jólakryddblöndu og ótrúlega miklum hvítlauk.

Bleikjuna fáum við frá Hala í Suðursveit (frá Fjölni og Þorbjörgu) grillum hana í ofni og berum fram með nýjum kartöflum og ljúffengri rjómasítrónusósu.

Kartöflur eru hvergi betri en í Hornafirði. Við fáum okkar kartöflur frá Seljavöllum og notum helst bara rauðar íslenskar og berum þær fram með öllu sem við getum  Eins notum við þær til að þykkja okkar frábæru humarsúpu.

Koli/Lúra er veidd í firðinum af Tobbalingunum Ágústi Þorbjörnssyni og sonum hans Nonna og Gísla.  Hér er hefð fyrir að borða hana herta en við setjum hana undir grillið og berum fram með sítrónu, smjöri og nýjum kartöflum.

Állinn er veiddur hér á Mýrum og aftur koma Tobbalingarnir  Ágúst og synir við sögu en þeir ásamt Ara Þorsteinsyni eiga heiðurinn af því að veiða og reykja álinn sem er á boðstólnum í desembermánuði.

Síld fáum við hjá Skinney-Þinganes, útgerðarfyrirtæki sem rekið er hér á Hornafirði. Síldin er á jólamatseðlinum okkar og er borin fram með heimatilbúnu karrýsalati og rúgbrauði.

Saltfisklundir kaupum við líka af Skinney-Þinganes útgerðinni og notum þær í að útbúa „Brandada“ sem er saltfiskplokkari með hvítlauk og kartöflum. Einnig berum við þær fram á bagettu með Mangó-chutney og salati sem er sérstaklega skemmtileg samsetning.

 

HumarhöfninKryddjurtirnar sem við notum eru basilíka, rósmarín, timian, sítrónumelissa, mynta, graslaukur, steinselja og kóríander.  Plönturnar okkar eru forræktaðar hjá Finndísi garðyrkjubónda í Dilksnesi en síðan færðar til áframræktunar í sólstofuna hjá Gústa og Beggu.  Þær prýða síðan gluggakisturnar hjá okkur í Humarhöfninn þar sem þær vaxa og dafna yfir sumarið og stutt er að sækja þær í matinn.

 Annað krydd í matseldinni hjá okkur er t.d. lífrænt villikrydd og blóðberg frá Blóðbergsgarðinum í Aðaldal í S- Þingeyjarsýslu en það notum við á lambakjötið okkar.  Við bjóðum einnig upp á teblöndur þaðan. Saltið sem við notum kemur frá Camargue héraðinu í Frakklandi og heitir „Fleur de Sel“ sem lauslega þýtt væri saltblóminn en hann kristallast á yfirborði sjávar og
                                                                      saltbóndinn fleytir honum varlega ofan af.  Nýmalaður svartur pipar er í miklu
                                                                      uppihaldi hjá okkur líka.  Að auki notum við svo ekta vanillustangir í okkar ekta
                                                                      Créme Brulé en þær eru innfluttar frá Madagaskar.


 
Réttir Humarhöfnin Humarhöfnin Humarhofnin Humarhöfnin
Humarhöfnin Humarhöfnin Réttir Humarhöfnin Réttir Humarhöfnin
Þetta vefsvæði byggir á Eplica