Humar uppskriftir

Hvítlauksristaður humar að hætti Kaffi Hornsins (fyrir 2)

Kaffi Hornið

20 stórir humarhalar
½ rauð paprika
½ rauðlaukur
5 sveppir
½ l. rjóma
skvetta koníak
2 msk. smjör
season al og hvítlauksduft eftir smekk.


Kljúfið humarinn í tvennt og opnið hann, kryddið með season al og hvítlauksduftinu. Saxið grænmetið smátt. Bræðið smjörið á pönnu. Steikið humarinn í skurðinn
í 2 – 3 mín. Setjið smátt saxað grænmetið út á. Hellið skvettu af koníaki út á pönnuna og eldsteikið. Hellið rjómanum út á og látið sjóða niður.
Sett á tvo diska og borðið fram með fersku salati og hvítlauksbrauði.

Verði ykkur að góðu.


 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica