Humar uppskriftir
Humarfrauð Kaffi Hornsins
Kaffi hornið
300 gr Humar 5 - 6 mats. Humar Bragð frá NorðurÍs 2 búnt fersk steinselja 1/2 l. þeyttur rjómi 3 dl mæjones 1 1/2 bréf mararlím (ljóst tóró) safi úr 1/2 sítrónu 1 tsk Knorr fiskikrydd 1 dl vatn
Aðferð: Humarin er soðinn og er hann hakkaður eða settar snöggt í matvinnsluvél, steinseljan er söxuð smátt og þessu tvennu blandað saman við mæjonesið, humar Bragðið frá NorðurÍs og fiskikryddið. Matarlímið er leyst upp í vatni og sítrónu og það kælt. Því næst er því blandað saman við rjómann, og að endingu er rjómanum blandað saman við farsið, sett í mót og kælt.
Þessi réttur er tilvalin sem forréttur eða jafnvel á hlaðborð.



