Humarhátíð Fréttir

Marilyn Monroe
Marilyn Monroe
Marilyn Monroe
Mynd 1 af 3
1 2 3

20.06.2012

Það er komið að því - Þjóðakvöld Kvennakórsins fer fram á morgun fimmtudag

Þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar - Serbía, Króatía og Bosnía

Árlegt Þjóðakvöld Kvennakórs Hornafjarðar verður haldið hátíðlegt í Mánagarði fimmtudaginn 21. júní. Nú í ár verður athyglinni beint að Serbíu, Króatíu og Bosníu en Kórinn hefur haft í nógu að snúast við að sanka að sér fróðleik og munum um löndin.

Að vanda verður lögð áhersla á mat þjóðanna, menningu og spaugilegar hliðar mannlífsins verða dregnar fram. Borðhald hefst klukkan 20:00 og húsið opnar klukkan 19:30.

Boðið verður upp á sætaferðir fram og til baka frá N1 og hefjast þær klukkan 19:00 svo það er um að gera að nýta sér tækifærið, skilja bílinn eftir og láta bara skutla sér heim eftir herlegheitin.

Miðaverð er 4000 krónur og hægt er að kaupa miða í forsölu í Miðbæ frá klukkan 13:00 í dag og við innganginn.

Sjáumst í dúndrandi stuði á fimmtudaginn

Kvennakór Hornafjarðar

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica