Humarhátíð Fréttir
Big Band tónleikar í Nýheimum
Big Band tónleikar
Big band tónleikar verða í Nýheimum á laugardag á Humarhátíð klukkan 15:00. Í hljómsveitinni eru nemendur og kennarar Tónskóla Austur - Skaftafellssýslu, ásamt fyrrverandi nemendurm skólans. Gunnlaugur Þröstur tónlistakennari stendur fyrir þessum tónleikum. Grunnurinn að þessu bandi, Big Bandi er Víkingasveitin en hún hefur spilað á lengra komnum nemendatónleikum Tónskólans í Austur – Skaftafellssýslu síðastliðin ár. Á tónleikunum verða spilaðar big band útsetningar á lögum, en þessi tónlist var mjög vinsæl danstónlist á 5. og 6. Áratugnum. Einnig kemur fram Hljómsveitin Bláar Mottur sem spilar Dixieland tónlist og tekur nokkur lög.




