Humarhátíð Fréttir
Lolla verður kynnir á Humarhátíð 2010
Lolla kynnir á aðalsviði Humarhátíðar
Ólafía Hrönn Jónsdóttir, betur þekkt sem Lolla verður kynnir á Humarhátíð á Höfn í ár. Lolla er Hornfirðingum góðkunn þar sem hún ólst upp á Hornafirði ásamt systrum sínum, sem enn eru búsettar hér. Lolla er landsþekkt leikkona og hefur leikið þáttum á borð við Dagvaktina sem sló heldur betur í gegn. Einnig hefur hún leikið í fjölda bíómynda á borð við Mömmu Gógó, Sumarlandið og Mýrin. Lolla stígur á stokk á föstudagskvöld klukkan 21:00 og mun sjá um að kynna dagskránna á aðalsviði, ásamt Kassabílarallíi og söngvakeppni barnanna um helgina ásamt tilheyrandi gríni og glensi.




