Humarhátíð Fréttir

Gangári
Gangári
Gangári Humarhátíð 2010
Mynd 3 af 3
1 2 3

01.07.2010

Var það Gangári?

Gangári leiðir áhorfendur í gegnum sögu bæjarins með lifandi viðburðum á Humarhátíð á laugardag kl 14:00

Gangárinn er náungi nokkur sem hefur verið uppi frá því fyrstu menn muna. Hann man allt sem gerst hefur, þekkir hvern krók og kima hvert sem litið er til sjávar eða sveita. Saga Hafnar er hans helsta áhugasvið um þessar mundir og hann ætlar að láta gamminn geysa og bjóða fólki í leiðsögn um Höfn á Humarhátíð. Hann mun leiða gesti í um klukkustundalanga gönguferð um bæinn með sögum af götum, húsum, fólki, vættum og hverju öðru sem á leið hans verður. Ef vel verður að gáð sjá áhorfendur umhverfið vakna til lífsins og ýmsar kynjaverur birtast samhliða gönguferðinni, þar mun bregða fyrir dans, tónlist, leik, söng og hinum ýmsu gjörningum. Það eru dansararnir og danshöfundarnir Aðalheiður Halldórsdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir sem hafa skapað heim Gangárans en saman starfa þær undir nafninu Vaðall. Þær hafa samið fjölda dansverka m.a. fyrir Íslenska dansflokkinn og Reykjavík dansfestival á undanförnum árum, en það erum einmitt 10 ár frá því þær hófu samstarf. Þær hafa báðar starfað sem dansarar hjá Íslenska dansflokknum til fjölda ára og hlutu báðar nýverið tilnefningu til Grímunnar sem dansarar ársins 2009. En það var fyrir tilstilli Reykjavík dansfestival 2009 sem þær sköpuðu svokallaða dansgöngu sem kallaðist Var það gangári? Þær unnu verkið í samstarfi við leiðsögumanninn eða gangáran, Ragnar Ísleif Bragason, ljóðskáld og leikhúslistamann. Verkefnið þótti ganga með eindæmum vel og sótti á þær sú hugmynd að fara með Gangáran af stað í ferðalag um landið, nú er svo komið að þau heimsækja Höfn. Þau hafa fengið til liðs við sig fjöldan allan af listamönnum sem búsettir eru á Höfn, má þar nefna kvennakórinn, leikhópa, tónlistarfólk af ýmsu tagi, bæjarvinnunana og svona mætti lengi telja. Vaðall segir viðtökur Hafnarbúa hafa verið framar öllum vonum og áhugi þáttakenda með eindæmum góður. Fyrir þá sem þora að leggja í leiðangur með gangáranum á Humarhátíð ættu að láta sjá sig við Pakkhúsið kl:14 á laugardeginum 3.júlí. Þetta er viðburður fyrir alla fjölskylduna og enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica