Humarhátíð Fréttir

Humarhátíð
Humarhátíð
Í skrúðgöngu á Humarhátíð

29.06.2010

Kæru íbúar!

 

Humarhátíð er framundan og nú þurfum við að hugsa fyrir skreytingum, þótt fyrr hefði verið!

APPELSÍNUGULUR er litur Hornafjarðar þessa helgi.

Allir skreyta með APPELSÍNUGULU en að sjálfsögðu er í lagi að nota eldri humarhátíðarskreytingar með. Viðurkenning verður veitt fyrir best skreyttu götuna. Hver og einn hugsar um sitt nánasta umhverfi.

Á fundinum sem haldinn var í Nýheimum s.l. mánudagskvöld var þessi ákvörðun tekin  og jafnframt ákveðið að allt sveitarfélagið verði eitt hverfi. Á föstudaginn er ein stór hverfahátíð við Esso hólinn (bak við N1) kl 19. Ekki er ætlunin að grilla saman, heldur að hristast samanfyrir skrúðgönguna sem heldur niður á hátíðarsvæði eftir Hafnarbrautinni kl 20:00.

 

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica