Humarhátíð Fréttir
Flóamarkaður á Humarhátíð
Á Humarhátíð hefur ætíð tíðkast að heimamenn og fleiri einstaklingar bjóði upp á söluvarning af ýmsum toga til sölu fyrir gesti Humarhátíðar.
Í ár verður engin breyting á því. Líkt og í fyrra verður markaðurinn í Kartöfluhúsinu hér í bænum og verður svið hátíðarinnar á því svæði.
Flóamarkaðurinn mun hefjast kl. 14 á laugardaginn 3. júlí og geta söluaðilar komist inn í húsið kl. 13 þann sama dag.
Þeir einstaklingar sem hafa áhuga á að fá borð á Flóamarkaðinum geta haft samband við Valda í síma 868-6865.



