Humarhátíð Fréttir

Götuhátíð á Humarhátíð
Götuhátíð á Humarhátíð

24.06.2010

Götuhátíðir á Humarhátíð

Götuhátíðir

Í gegnum árin hefur Humarhátíð ætíð hafist á svokölluðum hverfahátíðum. Á síðustu árum hefur þátttaka í þessu skemmtilega uppátæki minnkað en þess má geta að við Hornfirðingar vorum einna fyrstir til að hefja bæjarhátíðir á þennan hátt. Nú langar okkur í undirbúningsnefnd Humarhátíðar 2010 að biðla til ykkar bæjarbúa að endurvekja þessa skemmtilegu hefð. Hvort sem um er að ræða heil hverfi eða einstakar götur getur verið skemmtilegt að byggja upp stemmingu fyrir Humarhátíð á þennan hátt og fjölmenna svo í Skrúðgönguna sem leggur af stað frá Tjaldsvæðinu kl. 20 á föstudagskvöld. Með því að skreyta umhverfið okkar, grilla saman og hafa gaman getum við gert hátíðina enn skemmtilegri. Í lokin hvetjum við ykkur til að kynna ykkur dagskrá Humarhátíðar þetta árið og fjölmenna á sem flesta viðburði.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica