Humarhátíð Fréttir

lambagrill á Humarhátíð
lambagrill á Humarhátíð
Grillvagn ásamt Árna Ingvarssyni bónda

24.06.2010

Sauðfjárbændur í Austur-Skaftafellsýslu bjóða upp á grillað lambakjöt á Humarhátíð

Sauðfjárbændur í Austur-Skaftafellsýslu bjóða upp á grillað lambakjöt á Humarhátíð Á næstkomandi Humarhátíð munu sauðfjárbændur í Austur-Skaftafellssýslu bjóða gestum og gangandi upp á grillað lambakjöt í samstarfi við Meistarafélag kjötiðnaðarmanna, sem mun sjá um matseldina. Sérútbúinn grillvagn verður notaður til verksins sem Landssamtök sauðfjárbænda hafa látið smíða, en í honum er hægt að heilgrilla lambaskrokka auk þess sem hægt er að grilla lambakjöt á hefðbundinn hátt. Með þessu veisluhaldi vilja sauðfjárbændur minna fólk á þá miklu sauðfjárrækt sem stunduð er í sýslunni og gæði lambakjötsins. Jafnframt vilja þeir leggja sitt af mörkum til að gera Humarhátíð að ennþá fjölbreyttari hátíð og hvetja því sem flesta til að koma við í grillvagninum og fá sér að smakka ljúffengt lambakjöt.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica