Humarhátíð Fréttir
Ljósmyndamaraþon á Humarhátíð á föstudaginn 3. júlí og laugardaginn 4. júlí
Ljósmyndamaraþonið mun verða bæði á föstudag og laugardag á Humarhátíð. Maraþonið byrjar klukkan 12 á föstudeginum og því lýkur klukkan 19:00 sama dag. Daginn eftir verður einnig hægt að taka þátt í maraþoninu en það hefst klukkan 12:00 á laugardeginum og er búið klukkan 16:00 þann dag. Maraþonið hefst við Pakkhúsið og þar verða allar upplýsingar um þemu veitt þátttakendum, en þau verða 10 talsins og aðeins má skila inn einni mynd í hverju þema en nauðsynlegt er að skila myndum úr öllum 10 þemunum. Veitt verða verðlaun fyrir bestu myndaröðina, bestu stöku myndina og óvenjulegustu lausnina. Myndunum verður að skila inn á tilsettum tíma, eða klukkan 19:00 á föstudeginum og klukkan 16:00 á laugardeginum í Pakkhúsið. Verður hver mynd að vera merkt þemanu sem því fylgir ásamt eiganda myndarinnar.
Hægt er að taka við myndunum af minnislyklum, geisladiskum og minniskortum.
Allar myndir sem berast í maraþonið verða svo settar inn í myndasafnið á humar.is.
Ath! Sami aðili má ekki taka þátt nema annan daginn og verður að skila myndum á tilsettum tíma.
Nánari upplýsingar í síma 4708057!




