Humarhátíð Fréttir

Stemning_a_Humarhatid_2003
Stemning á Humarhátíð 2003
Stemning á Humarhátíð (úr myndasafni)

27.05.2009

Það fer að styttast í þetta!

Senn fer að líða að Humarhátíð sem verður á sama tíma og síðustu ár, eða fyrstu helgina í júlí. Hátíðin mun að þessu sinni vera með breyttu sniði en þess má geta að hún byrjar mánudaginn 29. júní og endar á sunnudeginum 5. júlí. Á þessari hátíð verður lögð áhersla á Hornfirska menningu í öllu, hvort sem það er matur, menning eða skemmtun. Tilgangurinn með þessu er að hefja hátíðina upp á hærra stig og sýna hvað í okkur býr með hornfirskri menningarveislu. Markmiðið er fyrst og fremst að fá Hornfirðinga og brottflutta Hornfirðinga til að sækja hátíðina og ýta þar með undir gildi hennar sem Hornfirskrar hátíðar út í gegn. Hátíðarsvæðið í ár hefur fengið nýja staðsetningu en sviðið verður staðsett fyrir framan saltfiskskemmurnar og hægt verður að sitja í hólnum á móti þeim og njóta skemmtiatriðanna. Einnig verða markaðir og básar færðir inn í ár, en þá munu Mikligarður og Kartöfluhúsið hýsa.

Hægt er að skoða dagskrá að humarhátíðinni á humar.is og þar verða reglulega settar inn greinar um viðburði og skemmtun þar til að hátíð kemur, svo það er um að gera að fylgjast vel með og taka helgina frá.


prufa

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica