Humarhátíð Fréttir
Skítamórall á Humarhátíð
Humarhátíðarnefnd hefur komið saman um nokkurn tíma og er allt komið á fullan skrið enda styttist í hátíðina sem verður haldin helgina 1. til 3. júlí n.k. Búið er að gera samning við eina af vinsælustu hljómsveitum landsins og er það Skítamórall sem mun sjá til þess að allir skemmti sér sem allra best. Aðrir skemmtikraftar eru að stimpla sig inn hver af öðrum því margir vilja koma á hátíðina. Áhersla er lögð á að sem flestir finni eitthvað við sitt hæfi þessa helgi og margir nýir dagskrárliðir ásamt þeim föstu verða til skemmtunar. Fjölskyldan verður höfð í fyrirrúmi, leikir, söngur, gleði og gaman alla hátíðina.
Þeir aðilar sem standa að humarhátíðinni þetta árið eru Knattspyrnudeild Sindra, Kvennakór Hornafjarðar og Björgunarfélag Hornafjarðar.




