Humarhátíð Fréttir

Hópurinn sem ætlar að keppa á Humarhátíð ásamt Hauki og Jóhanni
Hópurinn sem ætlar að keppa á Humarhátíð ásamt Hauki og Jóhanni
Hópurinn sem ætlar að keppa á Humarhátíð ásamt Hauki og Jóhanni
Mynd 1 af 2
1 2

28.06.2004

Nokkur pláss í söngvakeppnina

Fyrsta æfing hjá krökkunum fyrir söngvakeppnina sem verður á Humarhátíðinni á laugardeginum kl.14 fór fram um helgina og mættu 9 krakkar og verða þau samtals með 6 atriði. Eins og á síðustu Humarhátíð þá er gert ráð fyrir 10 söngatriðum og því er enn pláss fyrir nokkra krakka sem vilja koma fram. Æfingarnar fara fram í Tónskólanum í Sindrabæ og þeir sem aðstoða krakkana er ekki af verri endanum, en það eru félagarnir Haukur Þorvalds og Jóhann Morávek. Á síðustu Humarhátíð vakti söngvakeppnin mikla athygli og komu þar margir krakkar fram sem eflaust eiga eftir að láta að sé kveða í tónlistarbransanum í framtíðinni.

Næsta æfing er í Tónskólanum þriðjudaginn 29. júní og ef það eru einhverjir krakkar sem hafa áhuga á að vera með þá geta þeir haft samband við Hauk Þorvalds í síma 897 8885.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica