Humarhátíð Fréttir
Árni Johnsen skemmtir á Humarhátíð
Bryggjusöngur mun hljóma þetta árið á Humarhátíð því vísnasöngvarinn og fyrrverandi þingmaðurinn Árni Johnsen mun skemmta gestum hátíðarinnar á föstudagskvöldið. Valin lög munu hljóma úr 100 laga prógrammi sem Árni hefur sett saman. Árni segir að þetta sé mjög góð upphitun fyrir þjóðhátíðina í Vestmannaeyjum og er reynsla hans af Hornfirðingum sé sú að þeir erum mjög fljótir að taka með sér lagið. Árni sagði í samtali við humar.is frá eftirminnilegri ferð hingað austur þegar að hann var á ferð með samgöngunefnd þegar hún heimsóttir Hornafjörð og Djúpavog. Kom nefndin við á Hótel Vatnajökli um það leiti sem opna átti hótelið sem var eftir tvo daga og ætlaði nefndin að hitta Skarphéðin Larsen hótelhaldara en fékk þær fréttir að hann hafi verið fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur og því ekki getað tekið á móti nefndinni.
Þetta var döpur staða, stutt í opnun og forsprakkinn fjærri góðu gamni, þegar nefndin var að búa sig til ferðar þá rakst Árni á stóra skó við barinn, númer 46-47 og sá hann að þeir myndu passa sér, því spurði hann starfsfólkið hvort ekki væri til vinnugalli sem passaði við skóna og var þá sóttur vinnugalli Skarphéðins sem einnig átti skóna. Árni kvaddi samgöngunefndina og kvaðst ætla að verða eftir, vann hann síðan baki brotnu allan daginn við að mála í kartöflugeymslunni sem hafði verið breytt í fjölda hótelherbergja, þar ryksugaði hann einnig og þurrkaði af. Mála þurfti beina línu sem var eftir ganginum fyrir framan herbergin og þegar að Árni var að mála línuna fylgdust iðnaðarmenn á staðnum glöggt með því hvort línan yrði bein sem hún að sjálfsögðu var, enda þingmaðurinn vanur málari. Eftir að hafa unnið fram á miðnætti þá ákvað Árni að halda ferð sinni áfram, leit hann við í eldhúsinu þar sem hann fékk hrossabjúgu og þegar hann hafði matast hélt hann af stað gangandi vestur á bóginn. Þegar hann var kominn að afleggjaranum við Hoffell þá stoppaði þar bíll og var það Ingibjörg hárgreiðslukona (kona Dúdda) sem var að halda til síns heima í Hoffell, furðaði hún sig á því hvað þingmaðurinn væri að labba einn síns liðs í rigningunni og vildi að hann kæmi með sér heim þar sem hægt væri að útvega honum far suður. Ekki þáði Árni það og hélt áfram leið sinni, um hálftíma síðar stoppaði bíll og þar var á ferðinni Dúddi í Hoffelli maður Ingibjargar og vildi snúa honum við en engu tauti var komið við Árna, Dúddi hringdi því í Völu Egilsdóttur sem þá rak Völubúð í Nesjum til að athuga með ferðir flutningabíla á vesturleið, stuttu seinna fékk Árni far á puttanum að Freysnesi þar sem Samgöngunefndin gisti. Félagar Árna voru þar enn á fótum, eftir að hafa heyrt hvað Árni hafði fyrir stafni þá komst Guðmundur Árni Stefánsson svo að orði “Skrítið, maður gæti haldið að Árni væri farinn að huga að framboði á Austurlandi” Egill Jónsson frá Seljavöllum var fljótur til að taka undir með því að segja “Þeir gætu fengið verri þingmann”.




