Humarhátíð Fréttir
Leitað að verkefnastjóra fyrir Humarhátíð 2012
Humarhátíðarnefnd auglýsir lausa stöðu formanns/verkefnastjóra Humarhátíðarnefndar 2012. Gert er ráð fyrir sveigjanlegum vinnutíma og laun eru eftir samkomulagi.
Humarhátíðarnefnd auglýsir einnig eftir sjálfboðaliðum til að starfa í Humarhátíðarnefnd. Okkur vantar áhugasama til að hjálpa okkur með ákvarðanatöku, mótun á komandi hátíðum og framkvæmd þessarar. Humarhátíðarnefnd samanstendur af sjálfboðaliðum sem halda utanum undirbúning, skipulag og framkvæmd hátðarinnar í samstarfi við starfsmann.
Áhersla er lögð á að hátíðin er unnin í samstarfi nefndarinnar og starfsmannsins og mikilvægt að góð samvinna sé höfð að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgðasvið starfsmannsins eru:
- Vinna fjárhagsáætlun
- Vinna verkáætlun
- Sinna samstarfi við skipuleggjendur, þátttakendur og aðra sem koma að hátíðinni
- Skipuleggja dagská
- Heldur utanum öll leyfismál og samskipti við opinbera aðila
- Halda utanum hátíðina , markaðssetningu og efni, þar með talið heimasíðu
- Vinna að fjármögnun hátíðarinnar
- Starfsmaður er ábyrgur fyrir fjármálum ásamt nefndinni/stjórn Humarhátíðar
- Heldur utanum starfið og skilar lokaskýrslu til stjórnar Humarhátíðar
Umsóknum á að skila á rafrænu formi á netfangið info@humar.is . Með umsókn á að fylgja ferilskrá og meðmælendur. Í umsókn þarf að tilgreina helstu hugmyndir um framkvæmd hátíðarinnar og launakröfur. Umsóknum á að skila fyrir miðvikudaginn 7. mars 2012.
Humarhátíðarnefnd 2012




