Humarhátíð Fréttir

Hummi Humar
Hummi Humar

29.02.2012

Leitað að verkefnastjóra fyrir Humarhátíð 2012

Humarhátíðarnefnd auglýsir lausa stöðu formanns/verkefnastjóra Humarhátíðarnefndar 2012. Gert er ráð fyrir sveigjanlegum vinnutíma og laun eru eftir samkomulagi.
 
Humarhátíðarnefnd auglýsir einnig eftir sjálfboðaliðum til að starfa í Humarhátíðarnefnd. Okkur vantar áhugasama til að hjálpa okkur með ákvarðanatöku, mótun á komandi hátíðum og framkvæmd þessarar. Humarhátíðarnefnd samanstendur af sjálfboðaliðum sem halda utanum undirbúning, skipulag og framkvæmd hátðarinnar í samstarfi við starfsmann.
Áhersla er lögð á að hátíðin er unnin í samstarfi nefndarinnar og starfsmannsins og mikilvægt að góð samvinna sé höfð að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgðasvið starfsmannsins eru:

  • Vinna fjárhagsáætlun
  • Vinna verkáætlun
  • Sinna samstarfi við skipuleggjendur, þátttakendur og aðra sem koma að hátíðinni
  • Skipuleggja dagská
  • Heldur utanum öll leyfismál og samskipti við opinbera aðila
  • Halda utanum hátíðina , markaðssetningu og efni, þar með talið    heimasíðu
  • Vinna að fjármögnun hátíðarinnar
  • Starfsmaður er ábyrgur fyrir fjármálum ásamt nefndinni/stjórn Humarhátíðar
  • Heldur utanum starfið og skilar lokaskýrslu til stjórnar Humarhátíðar

Umsóknum á að skila á rafrænu formi á netfangið info@humar.is . Með umsókn á að fylgja ferilskrá og meðmælendur. Í umsókn þarf að tilgreina helstu hugmyndir um framkvæmd hátíðarinnar og launakröfur. Umsóknum á að skila fyrir miðvikudaginn 7. mars 2012.
Humarhátíðarnefnd 2012

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica