Humarhátíð Fréttir

Humarhátíð 2011 3
Humarhátíð 2011 3
Humarhátíð á Höfn 2011
Mynd 3 af 9
1 2 3 4 5 6 7 8 9

06.07.2011

Humarhátíð 2011 lokið

Blaut Humarhátíðarhelgi

Humarhátíð á Hornafirði lauk á sunnudag eftir eindæma blauta helgi. Varla hefur lekið dropi úr lofti frá því í lok maí en um leið og Humarhátíð hófst af krafti þá dembdist niður rigningin og hætti ekki fyrr en seint á sunnudegi.

Að öðru leyti heppnaðist Humarhátíðin vel og mikið líf var í bænum. Opnunarhátíðin fór fram á hátíðarsviði sem staðsett var á móti brekkunni við Kartöfluhúsið. Kynnir hátíðarinnar, Felix Bergsson, sá um að halda hátíðinni í réttum gír og meðal þeirra sem stigu á stokk á föstudagskvöldið voru Íþróttaálfurinn úr Latabæ, töframaðurinn Einar Mikael, Kvennakór Hornafjarðar, tískusýning, hljómsveitin Parket og svo var frumflutningur á Humarhátíðarlaginu 2011. Vegna mikillar rigningar á laugardeginum var sú ákvörðun tekin að færa dagskrá af hátíðarsvæðinu inn í íþróttahús.

Barnadagskrá

Mjög vönduð barnadagskrá var á þessari Humarhátíð. Á föstudagsmorgun var galdrakennsla hjá töframanninum Einari Mikael og var mæting frábær en samtals mættu 170 krakkar. Seinna á föstudeginum bauð Nettó uppá Íþróttaálfinn úr Latabæ í Sindrabæ. Fjöldi krakka og fullorðinna fylltu Sindrabæ og fylgdust dolfallin með álfinum.

Á laugardeginum var mikið um að vera. Kassabílarallí Landsbankans var á sínum stað við Landsbankann og mættu 9 bílar til leiks. Flottasti bíllinn var Lobsterbíllinn en eigendurnir eru Laufey Lind og Freyja Sól Kristinsdætur. Frumlegasti bílinn var draugabíll Rögnu Steinunnar og Axels Orra.

Á hraðasta bílnum voru Guðný Árnadóttir og Júlía Sif Jónsdóttir á tímanum 13:10 en fast á hæla þeirra voru Jóel Ingason og Auðunn Ingason; og Ragna Steinunn Arnarsdóttir og Axel Orri Arnarsson. Seinna um daginn mættu svo Björgvin Franz og félagar í Sindrabæ og troðfylltu börn og fullorðnir húsið og var gríðarleg stemning.

Á laugardaginn var einnig haldin söngvarakeppni barnanna. Börnin gátu æft sig með Heiðari í Sindrabæ fyrr um daginn en 15 tóku þátt í keppninni sem hófst kl 16. Sigurvegari keppninnar var Ragna Steinunn Arnarsdóttir.

Ýmsar keppnir í gangi

Mótorkross sýning var við Drápskletta á fimmtudag og gekk sú sýning mjög vel. Pálmi Freyr var valinn í fyrsta sæti. Burnout keppni var á laugardag við Bílaverkstæði Gunnars Pálma og hlaut Runólfur Hauksson fyrsta sætið og besta búmmið.

Hátíðarmót í Golfi fór fram á Silfurnesvelli á laugardagsmorgun. Leiknar voru 18 holur en eftir 9 holur gáfust einhverjir upp á bleytunni og héldu heim á leið. Úrslit mótsins voru þau að Magnús Jónasson sigraði í höggleik og Gestur Halldórsson sigraði í punktakeppni karla. Í kvennaflokki sigraði Sigrún Sigurðardóttir.

Heimsmeistaramótið í Hornafjarðarmanna fór fram í íþróttahúsinu á laugardag. Góð þátttaka var á mótinu en um 130 manns mættu. Heimsmeistari varð Gísli Jóhannsson í annað skipti.

Körfuboltamót Sindra var haldið í rigningunni á laugardaginn og voru samtals sex lið sem tóku þátt, tvö í yngra flokki og fjögur í eldra flokki. Í yngra flokki sigruðu Sólon Svan, Alexander Snær og Hafþór Snorrason en í eldra flokki Björgvin Erlendsson, Björgvin Sigurjónsson og Skúli Þórarinsson.

Á sunnudaginn var frjálsíþróttamót Sindra á Sindravöllum. Keppnin hófst kl 13 og stóð frameftir degi. Góð mæting var á mótið en um 30 krakkar mættu þrátt fyrir vætu á vellinum.

Fjölbreytt flóra menningarviðburða

Tolli opnaði sýningu á verkum sínum í Kartöfluhúsinu á fimmtudag, en þema sýningarinnar er landslag. Hlynur Pálmason opnaði sýningu á verkum sínum einnig á fimmtudag en hann hefur verið með sýningu á Garðaloftinu undanfarin 4 ár.

Hulda Rós Sigurðardóttir var með sýningu á lokaverkefni sínu um Svavar Guðnason sem ber nafnið "Svavar / náttúran – sagan“ og var hún opin alla helgina. Listakonurnar Guðrún Ingólfsdóttir og Eyrún Axelsdóttir voru með opnar vinnustofur sínar um helgina en þær eru staðsettar í Miklagarði. Sigurður Einarsson var með opna vinnustofu þar sem hann var með varning unninn úr hreindýrahornum til sýnis og sölu.

Á fimmtudagskvöld hélt Kvennakór Hornafjarðar sitt árlega Þjóðakvöld og í ár var þemað Afríka. Uppselt var á viðburðinn og mikill stemning. Á fimmtudag var stórhljómsveitin Valdimar með tónleika í íþróttahúsinu, var mæting góð og lukkuðust tónleikarnir vel í hvívetna. Tónleikar Big Bands Hornafjarðar undir styrkri stjórn Gunnlaugs Þrastar Höskuldssonar voru í Nýheimum á laugardag og mættu um 130 gestir til að hlýða á þessa góðu hljómsveit.

Heimamarkaðsbúðin opnaði á fimmtudag en umsjónarmenn hennar eru Fanney Björg og Sindri Ragnarsson.

Á föstudagskvöld leiddu Gunnhildur Stefánsdóttir og Ágústa Margrét Arnardóttir saman hesta sína undir merkjunum Gammur og Arfleifð og voru með sýningu á hátíðarsviði og vörur sínar svo til sölu í Pakkhúsinu

Markaður humarhátíðar var í Kartöfluhúsinu að vanda og þar var margt um manninn.

Dansleikir fóru vel fram.

Góð stemning var á dansleikjum á Humarhátíð og án teljandi árekstra. Hljómsveit Hauks Þorvalds var með rífandi stemningu í Pakkhúsinu á föstudagskvöld en sonur Hauks og félagar hans í Parket héldu uppi stuði á Víkinni. Á laugardagskvöld var stórdansleikur í íþróttahúsinu þar sem hjómsveitin Buff var að spila. Gekk allt eins og í sögu á því balli. Á sama tíma spilaði hljómsveitin KUSK í Pakkhúsinu við fína stemningu.

Eins og fyrr segir heppnaðist hátíðin vel og er undirbúningur fyrir hátíðina á næsta ári hafin en það er 20 ára afmæli Humarhátíðar.


Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica