Humarhátíð Fréttir

Humarhátíðarlag 2011 1
Humarhátíðarlag 2011 1
Geturðu ekki reynt að klæða þig eins og maður Sigríður, Stjáni, Birgir, Bjartmar, Júlli, Siggi
Mynd 1 af 2
1 2

01.07.2011

Lag Humarhátíðar árið 2011

Nýtt lag humarhátíðar 2011

Lag Humarhátíðar í ár er frægast í flutningi hljómsveitarinnar Aerosmith undir nafninu Dude looks like a lady, en eftir að það hefur verið beinþýtt yfir á „hornfirsku“, ef svo má að orði komast, þá heitir það „Ég fer á Humarhátíð“, sem er augljóslega eina og rétta þýðingin.

„Geturðu ekki reynt að klæða þig eins og maður Sigríður“, eða súpergrúbba Hornafjarðar eins og hún er sjaldnast kölluð, flytur lagið í ár og meðlimir hljómsveitarinnar eru: Stjáni Haux, Júlli Fúsa, Biggi Reynis, Siggi Mar, og Bjartmar. Aðrir sem koma við sögu í upptökunum eru Frikki Jóns sem þekktastur er fyrir að spila með hljómsveitum á borð við The Cha Cha Cha's, Parket og Afró og Sigurður Páll Árnason sem sér um að taka upp lagið og útsetja það.

„Geturðu ekki reynt að klæða þig eins og maður Sigríður“, var stofnuð snemma á vormánuðum 2011 eftir að verðandi meðlimum kom saman um að þeim leiddist mjög mikið og þá langaði endilega að gera eitthvað. Ákveðið var að stofna hljómsveit og varð þetta skemmtilega nafn fyrir valinu. „Þetta er ábreiðu (cover) hljómsveit, en við erum ekkert einhæfir þar sem við tökum bæði gömul og hallærisleg lög“, segja hljómsveitarmeðlimir að lokum.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica