Humarhátíð Fréttir

Valdimar-4
Valdimar-4
Hljómsveitin Validmar
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

30.06.2011

Valdimar

Stórsveitin Valdimar

Hljómsveitin Valdimar hefur verið að gera það gott upp á síðkastið og sendi fyrir skömmu út sína fyrstu plötu, Undraland, sem hefur fengið mjög góðar móttökur. Hljómsveitin spilar lágstemmda tónlist með reggí/djass – ívafi og helsta áskorun sveitarinnar er að skapa sér sinn sjálfstæða tón. Meðlimir sveitarinnar eru flestir frá Keflavík og eru allir menntaðir tónlistarmenn.

Hljómsveitin var stofnuð árið 2009 eftir að Valdimar Guðmundsson söngvari sveitarinnar og Ásgeir Aðalsteinsson gítarleikari hennar höfðu verið að semja saman í smá tíma. Hljómsveitin hefur verið dugleg að koma fram frá því að fyrsta platan þeirra kom út og munu nú sækja Hornfirðinga heim. Tónleikarnir fara fram í kvöld, fimmtudagskvöld klukkan 22:00 og miðaverð er 1500 krónur.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica