Humarhátíð Fréttir
Stúdíósýning Hlyns Pálmasonar á Graðaloftinu
Hlynur með stúdíósýningu
Hlynur Pálmason verður með sýninu á Graðaloftinu eins og undanfarnar Humarhátíðir og nefnist hún einfaldlega Graðaloftið og er stúdíósýning þar sem hægt er að sjá hvað hann er að prófa sig áfram í. Sýningin er fjölbreytt og sýnir ólíka miðla sem Hlynur hefur áhuga á. Ekkert sérstakt þema er í gangi fyrir þessa sýningu, heldur er hún lítið brot af öðrum stærri sýningum sem hann er að undirbúa.
Sýning Hlyns opnar klukkan 17:00 í dag fimmtudag og verður opin á föstudag frá klukkan 20:00 til 23:00, á laugardag frá 10:00 til 21:00 og á sunnudag frá 13:00 til 19:00.




