Humarhátíð Fréttir
Gingó með listmuni til sölu í Miklagarði á Humarhátíð
Vinnustofa Gingó í Miklagarði
Vinnustofa Gingó í Miklagarði opnar á föstudagskvöldinu klukkan 20:00 á Humarhátíð. Opið verður fyrir gesti og gangandi og hægt er að skoða vinnustofuna ásamt því að kaupa listmuni eftir Gingó. Þeir listmunir sem verða til sölu eru hraunbúar, postulínsfuglar, ljós, kertaker, sjávarþaraeyrnalokka, myndir, sandkerti og hraunkerti. Gestir geta einnig skoðað sandkertagerðina sem er mikil upplifum að fylgjast með.




