Humarhátíð Fréttir
Ferðafélag Austur - Skaftafellssýslu
Ekki lúra of lengi
Ferðafélag Austur - Skaftfellinga er með mjög metnaðarfulla dagskrá í Humarhátíðarvikunni og býður upp á fjölbreyttar gönguferðir um nágrenni Hornafjarðar dagana 26. til 30. júní.
Allar göngurnar eru kenndar við fisk á einn eða annan hátt. Hægt er að velja um Loðnugöngu, Þorskgöngu, Síldargöngu, Lúrugöngu eða Humargöngu.
Farið verður í tvær gönguferðir alla dagana. Flestir ættu að geta fundið göngu við sitt hæfi en hægt er að velja um létta eða erfiða ferð á hverjum degi.
Ferðirnar gert tekið allt frá 3 klukkutímum og upp í 12 tíma. Fyrsta ferðin er sunnudaginn 26. júní en þá verður farið frá Bergárdal á Miðfellstind eða léttur hringur um Bergárdalinn, sem er 3 - 6 tíma ferð, en einnig er hægt að velja erfiðari göngu sama dag frá Heinabergsdal að Humarkló en það er 10 til 12 tíma ganga.
Allir eru velkomnir í ferðirnar. Nánari upplýsingar um Ferðafélagið og dagskrá þess er að finna á




