Humarhátíð Fréttir
Tolli opnar sýningu á verkum sínum í Kartöfluhúsinu
Sýning á verkum Tolla
Sýning á verkum Tolla opnar 30. júní í Kartöfluhúsinu.
Tolli kom fram á sjónarsviðið sem einn af upphafsmönnum nýja málverksins í byrjun níunda áratugarins. Á undanförnum árum hefur hann beint sjónum sínum æ oftar að íslensku landslagi og dregið þaðan aðföng í málverk sín.
Verkin sem verða til sýnis í Kartöfluhúsinu eru olíumálverk og þemað er landslag. Sýningin er sölusýning og verður opin til 31. júlí. Opið verður frá klukkan 13:00 til 17:00 alla daga nema mánudaga.




