Humarhátíð Fréttir
Humarhátíð 2010 lokið
Þá er Humarhátíð í ár lokið og gekk hún ljómandi vel sé tekið mið af veðurfarinu sem við höfðum því miður enga stjórn á. Dagskráin riðlaðist lítillega vegna veðurs en hún var flutt inn í íþróttahúsið á laugardeginum.
Eins og gestir hátíðarinnar vita var Lolla kynnir þetta árið og var sjálfkjörin humardrottning 2010. Klæddist hún íðilfögrum humarbúningi sem hún hannaði sjálf og hefur nú afhent hornfirðingum. Héðan í frá er því stemmt að krýningu humardrottningar ár hvert en æskilegt er að hún hafi þrjá kosti eins og Lolla benti á á hátíðarsviðinu á föstudagskvöld. Þessir kostir eru þeir að drottningunni þarf að þykja humar góður, hún þarf að hafa unnið í humri og hafa komið á Humarhátíð á Höfn.
Kærar þakkir fyrir skemmtilega hátíð, endurtökum leikin að ári :)
Undirbúningsnefnd




