Humarhátíð Fréttir
Pillaðu þig á Humarhátíð
Hljómsveitin Parket
Snillingarnir í Parket hafa nú sett saman Humarhátíðarlag fyrir hátíðina í ár. Hér er á ferðinni grípandi rokk og ról að hætti þeirra Parketsveina. Það var Hafþór Smári Imsland sem að tók upp lagið fyrir sveitina og hljóðblandaði. Allir aðdáendur Humarhátíðar og Parkets eru hvattir til að hlusta á lagið og um að gera að læra textann utan að fyrir kvöldið.
Pillaðu þig á Humarhátíð.
Ég fer á Humarhátíð
Ég elska að tala í þátíð
Um allt sem ég hef þar gert
Ég mæti á hverju sumri
Og grilla tonn af humri
Pissa á allt sem er ekki merkt
Því ég hef megnustu samúð
Með þessu sauðheimska fólki
Sem fer eitthvað annað
Ég hef ekkert við þau að tala
Minn guð hefur Humarhala
Á spjóti, út í brauð eða súpu
Af grunnum diski eða djúpum
Pillaður eða í skel
Spriklandi steiktur í smjöri
Það mætti drekka hann með röri
Alltaf bragðast humar jafn vel
Því ég hef megnustu samúð
Með þessu sauðheimska fólki
Sem fer eitthvað annað
Ég hef ekkert við þau að tala
Minn guð hefur Humarhala
Það er stuð niðri á bryggju
En ég hef annað í hyggju
Ég ætla á Parket í kvöld
Þar verður partý geim
Ég ætla ekki heim
Þegar gleðin tekur öll völd
Því ég hef megnustu samúð
Með þessu sauðheimska fólki
Sem fer eitthvað annað
Ég hef ekkert við þau að tala
Minn guð hefur Humarhala
Hér fyrir neðan er hlekkur inn á Humarhátíðarlagið 2010
http://www.rikivatnajokuls.is/media/vidburdir/humarhatid/Pilladu-thig-A-Humarhatid.mp3




