Humarhátíð Fréttir
Unglingahljómsveitir á Humarhátíð
Unglingahljómsveitir við gamla KASK húsið
Það er löngu orðið ljóst að bærinn okkar hefur alið og á helling á flottu og færu tónlistarfólki hvort sem um er að ræða blásturshljóðfæraleika, unga söngvara eða gamla rokkhunda. Tónlistin býr yfir undramætti og hefur hún a.m.k. grætt mína sál í allnokkur skipti. Því er nauðsynlegt að allir sem hafa áhuga á og viljann til að spila tónlist fái tækifæri og aðstöðu til þess að fá að koma fram og vaxa og dafna sem tónlistarmenn. Nú á laugardag milli 16-18 verða ungir Hornfirðingar með tónleika við gamla Jöklasafnið og eru að sjálfsögðu allir hvattir til að kíkja við. Þeir sem fram koma eru: Heimir Konráð, Drífa Hrönn, Sædís Harpa, Þóra Birna, Guðjón Viðar, Tolli Brynjólfsson, Birkir Þór og Þorkell Ragnar og hljómsveitirnar Minsk, Antares og Dixon.
Nanna Imsland




