Humarhátíð Fréttir

Arfleifð
Arfleifð
Mynd 4 af 6
1 2 3 4 5 6

30.06.2010

Fata- og fylgihlutasýningin „Íslenska konan“ á Humarhátíð

 

Föstudagskvöldið 2. júlí kl 22:oo verður sýning á sérhönnuðum  og handgerðum hágæða tískuvörum frá Arfleifð- Heritage from Iceland.

Arfleifð sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á töskum, fylgihlutum og fatnaði úr íslenskum hráefnum; hreindýra- sel- og lambaleðri, þorsk-lax-hlýra- og karfaroði, hreindýrshornum, hrossa tagli, þæfðri ull og fleiru sem náttúran gefur okkur. Hver hlutur er vandlega hannaðar út frá náttúrlegu lagi hráefnisins, fagurlegu útliti og þægilegu notagildi. Hver hlutur er handgerður af kostgæfni og vandvirkni.  Hver hlutur er einstakur.

Arfleifð frumsýndi vörur sínar á Djúpavogi 24. apríl 2010 og nú er komið að því að sýna Hornfirðingum og gestum Humarhátíðarinnar vörurnar á flottri og fjölbreyttri sýningu í Kartöfluhúsinu fyrir ofan hátíðarsvæðið frá kl 22-23:oo á föstudagskvöldinu.

Sýningin nefnist  „Íslenska konan“ og hugmyndin bakvið sýninguna er að sýna hversu glæsilegar konur eru óháð aldri, vaxtarlagi, menntun, starfi eða stöðu.  15-20 flottar fyrirsætur sína fjölbreyttar vörur en inn í sýninguna fléttast líka tónlist, ljósmyndir, textar og fleira.

Ágústa Margrét Arnardóttir er eigandi Arfleifðar og hannar og handgerir allar vörurnar frá hugmynd að fullbúnum hlut. Hún er fædd og uppalin á Höfn í Hornafirði og hefur verið búsett á Djúpavogi frá árinu 2006. Útskrifaðist sem stúdent af listnámsbraut- hönnunarsviði frá Iðnskólanum í Hafnarfirði 2005. Lærði skó- og fylgihlutahönnun í IED á Ítalíu árið 2006. Hefur einnig sótt fjölmörg námskeið í tösku- og skartgripagerð. Ágústa hefur að langmestu leyti þróað sjálf með sér tæknina sem hún notar við meðhöndlun á skinnum sem er allt öðru vísi en að vinna með textíl efni . Skinnin eru „lifandi“ og taka þarf mið af því við framleiðslu á vörum.

Allar vörur eru handgerðar og horfir Ágústa mikið til forfeðra og formæðra okkar sem notuðu þau hráefni sem náttúran gaf þeim, unnu allt í höndunum og komu sér upp tækni til að búa til þá hluti sem þeim vantaði, vildu og þurftu að eiga. Innblásturinn kemur að langmestu frá hráefnunum sjálfum, íslenskri náttúru, íslensku handverki, íslenskum hefðum og menningu. Okkar íslenska Arfleifð.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica