Humarhátíð Fréttir

Blár humar á Sædýrasafninu
Blár humar á Sædýrasafninu í Risör

29.06.2010

Fyrirlestur um humar í Nýheimum klukkan 20:00

Gummi í Matís flytur fyrirlestur um Humar

Á morgun miðvikudag mun Guðmundur í Matís vera með áhugaverðan fyrirlestur um humar í Nýheimum klukkan 20. Í fyrirlestrinum fjallar Guðmundur vítt og breitt um humar. Farið er yfir helstu tegundir og furðulegar tegundir humra skoðaðar. Af nógu er að taka enda fleiri en 500 humartegundir þekktar í heiminum. Áhersla er á létta fræðslu um líffræði íslenska leturhumarsins og sögu veiða hér á Hornafirði. Sem dæmi um spurningar sem leitast verður við að svara má nefna: Hvert er útbreiðslusvæði humars á íslandsmiðum? Veiðum við mikið miðað við aðrar þjóðir? Hvernig þekkir maður í sundur karl og kerlingu? Hvað er stærsti humarinn sem veiðst hefur? Hvenær byrjuðu Hornfirðingar að veiða humar? Hvernig gengur tilhugalífið fyrir sig? Hvernig búa humrar? Markmiðið með fyrirlestrinum er að allir sem á hlýði viti aðeins meir um humar en áður og reynt verður að haga frásögn þannig að enginn sofni.

Senda grein

 
Ljúfir tónar Flugeldasýning á Jökulsárlóni Stelpurnar okkar og dómarar mættu

Þetta vefsvæði byggir á Eplica