Humarhátíð Fréttir
Ljósmyndamaraþon á Humarhátíð
Líkt og á síðasta ári verður efnt til Ljósmyndamaraþons á Humarhátíð í ár.
Að þessu sinni mun megin þema maraþonsins vera Humarhátíð 2010 en nánar upplýsingar um undirþema verða kynntar á hádegi á föstudag í Pakkhúsinu en þá hefst maraþonið formlega. Samkeppninni mun ljúka stundvíslega kl. 16 á laugardag og tekur þá Hafþór Bogi við myndum á tölvutæku formi í Pakkhúsinu. Hver þátttakandi getur skilað inn 2 myndum fyrir hvert þema og verða myndirnar að vera merktar bæði keppanda og þema.
Glæsileg verðlaun eru í boði en þau verða veitt fyrir Bestu myndaröðina, Bestu myndina og Skemmtilegustu lausnina. Verðlaunaafhending mun fara fram á laugardagskvöldi á aðalsviði hátíðarinnar og verða myndirnar til sýnis í Heimamarkaðsbúðinni í Pakkhúsinu eftir að maraþoninu lýkur.
Á síðustu Humarhátíð fór ekki fram hjá neinum að margir mjög hæfileikaríkir ljósmyndarar finnast á Hornafirði og því verður spennandi að sjá afrakstur þessa árs. Allir áhugamenn um ljósmyndun eru því hvattir til að taka þátt í Ljósmyndamaraþoni Humarhátíðar 2010.




