Humarhátíð Fréttir
Mikligarður á Humarhátíð 2010
Lokast einar dyr opnast aðrar
Jón Björnsson, Daníel Imsland og Hafþór Bogi Reynisson sýna „Mixed media“ á efri hæð í vesturenda Miklagarðs en á hinum endanum ætlar Hanna Jónsdóttir að sýna verk í vinnslu. Hlynur Pálmason verður staðsettur á Graðaloftinu, nýkominn frá Danmörku en sýning hans kallast „Graðaloftið – Stúdíósýning“. Á sýningum listamannanna má fólk búast við að sjá verk unnin úr sandi, hreindýrshorni, tré, járni og leir, sem og ljósmyndir sem fanga bæði náttúru og mannlíf í Ríki Vatnajökuls. Síðast en ekki síst er þetta góður grundvöllur til þess að kynna sér þessar nýju atvinnugreinar sem er að ryðja sér til rúms á Íslandi. Einnig er þetta gott tækifæri til þess að koma sínum hugmyndum á framfæri varðandi nýtingu þessa svæðis og skoða þetta sögulega húsnæði.
Auglýstur opnunartími í Miklagarði
Föstudagur 2 júlí kl. 17:00 – 21:00
Laugardagur 3 júlí kl. 13:00 – 21:00
Sunnudagur 4 Júlí kl. 13:00 – 19:00




