Humarhátíð Fréttir
Rökræður Hugans
Sýning á verkum Svavars Guðnasonar í Nýheimum
Föstudaginn 2. júlí klukkan 17:00 opnar sýning á verkum Svavars Guðnasonar í Nýheimum. Á opnuninni verða verk úr dánarbúi Ástu Eiríksdóttur, ekkju Svavars afhent sveitarfélaginu við formlega athöfn. Á sýningunni verður sjónum beint að lífshlaupi Svavars og Ástu og mikilvægi Svavars í íslenskri myndlistarsögu. Sýndar verða heimildarmyndir um Svavar og lífi þeirra Ástu gerð skil. Verkin sem verða til sýnis eru flest frá fyrri hluta ferils Svavars og sýna þau umbrot og þróun sem verða í listsköpun fyrstu árin sem hann bjó í Kaupmannahöfn. Heiti sýningarinnar sækir í þessa persónulegu þróun, á miklum umbrotatímum í evrópskri sögu og þeim skrefum sem ungir listamenn í Kaupmannahöfn, þar með talinn Svavar, stigu - skrefin yfir í abstraktlistina sem varð svo einkennandi fyrir feril Svavars og samferðamanna hans. Ásta gaf sveitarfélaginu fjölda verka á sínum tíma enda tenging Svavars sterk við heimahagana og nú bætist enn við þá eign. Verkin sem Ásta og aðrir hafa gefið sveitarfélaginu eru grundvöllur safns og sýningarstarfsemi í kringum verk Svavars og annarra sem byggt verður upp á komandi árum. Sýningarstjóri er Björg Erlingsdóttir Sýningin verður opin alla virka daga fram til 31. ágúst 2010 klukkan 10-16 og á Humarhátíð, laugardag og sunnudag klukkan 14-18. Aðgangur er ókeypis.




